Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landhelg­is­gæsla Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Sérhæfður tæknimaður á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

20.05.2026

Umsóknarfrestur

15.06.2026

Sérhæfður tæknimaður á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli

Hefur þú brennandi áhuga á rafeinda- og hátæknibúnaði og ert að leita að nýrri áskorun?

Landhelgisgæsla Íslands óskar eftir að ráða áhugasama og trausta liðsfélaga í samhenta deild sérfræðinga sem bera ábyrgð á rekstri, viðhaldi, viðgerðum, uppsetningu og þróun á tækni- og kerfisbúnaði Atlantshafsbandalagsins hér á landi.

Búnaðurinn og kerfin samanstanda m.a. af stjórnstöðvar-, ratsjár-, fjarskipta-, samskipta- og kerfisbúnaði sem staðsettur er í stjórnstöð Atlantshafsbandalagsins á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli og á ratsjár- og fjarskiptastöðvum Atlantshafsbandalagsins á Miðnesheiði, Bolafjalli, Gunnólfsvíkurfjalli og Stokksnesi. Starfið krefst m.a. skipulagðra og tilfallandi ferða út á stöðvarnar á öllum tímum ársins.
Varnarmálasvið Landhelgisgæslunnar annast framkvæmd rekstrartengdra varnarverkefna. Unnið er samkvæmt kröfum, stöðlum, reglum og leiðbeiningum Atlantshafsbandalagsins og fær viðkomandi viðeigandi þjálfun í þeim verkefnum, hér á landi og eftir því sem við á erlendis, hjá stofnunum Atlantshafsbandalagsins og aðildaþjóðunum.

Starfsstöð er á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli og er um að ræða fullt starf í dagvinnu ásamt bakvöktum og tilfallandi vinnuskyldu utan dagvinnutíma.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Rekstur, viðhald, bilanagreining og viðgerðir á ratsjár-, fjarskipta- og kerfisbúnaði Atlantshafsbandalagsins á öryggissvæðum

  • Viðgerðir íhluta

  • Verkskráning, skýrslugerð og uppfærsla teikninga

  • Þátttaka í þjálfunarverkefnum

  • Stuðningur við erlendan liðsafla á öryggissvæðum

  • Önnur tengd verkefni

Hæfniskröfur

  • Iðnmenntun sem nýtist í starfi, s.s. rafeindavirkjun. Framhaldsnám í tæknifræði er kostur

  • Góð þekking á virkni rafeindabúnaðar

  • Góð tæknileg þekking og færni í bilanagreiningu

  • Þekking og/eða reynsla af viðhaldi fjarskiptabúnaðar er kostur

  • Þekking og/eða reynsla af viðhaldi véla og tækja er kostur

  • Grunnþekking á kerfis- og hugbúnaði ásamt virkni netkerfa er kostur

  • Þekking á Linux er kostur

  • Góð samskiptahæfni, fagmennska og frumkvæði

  • Öguð vinnubrögð og geta til að vinna undir álagi við krefjandi aðstæður

  • Reglusemi, nákvæmni, snyrtimennska og stundvísi

  • Ökuréttindi

  • Góð enskukunnátta

  • Vegna eðlis starfs og starfseminnar er búseta á Suðurnesjum kostur

Umsækjendur þurfa að standast kröfur Landhelgisgæslunnar um líkamlegt og andlegt atgervi. Einnig skal starfsfólk uppfylla skilyrði fyrir öryggisheimild samanber varnarmálalög nr. 34/2008 og reglugerð nr. 959/2012.

Frekari upplýsingar um starfið

Landhelgisgæsla Íslands er löggæslustofnun sem hefur það hlutverk að sinna löggæslu og eftirliti sem og leit og björgun á hafsvæðinu umhverfis Ísland. Landhelgisgæslan annast einnig framkvæmd á varnartengdum rekstrarverkefnum í umboði utanríkisráðuneytisins sbr. varnarmálalög nr. 34/2008 og samning við utanríkisráðuneytið, þ.m.t. er rekstur öryggissvæða, mannvirkja, kerfa, stjórnstöðvar og ratsjár- og fjarskiptastöðva Atlantshafsbandalagsins.
Hjá Landhelgisgæslunni starfar rúmlega 270 manna samhentur hópur sem hefur að leiðarljósi slagorðið: Við erum til taks! Gildi Landhelgisgæslunnar eru: Öryggi – Þjónusta – Fagmennska.
Landhelgisgæslan starfar samkvæmt jafnréttisstefnu og er jafnlaunavottuð.
Nánari upplýsingar um Landhelgisgæslu Íslands má finna á: www.lhg.is.

Umsóknarfrestur er til og með 15. júní 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Umsóknir gilda í sex mánuði frá dagsetningu auglýsingar. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 15.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Helga Birna Jónsdóttir

Tölvupóstur: helga@intellecta.is

Sími: 511-1225

Þjónustuaðili

Landhelg­is­gæsla Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Sérhæfður tæknimaður á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli

Staðsetning

Suðurnes

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

20.05.2026

Umsóknarfrestur

15.06.2026