
Þjónustuaðili
Byggðastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Umsjónarmaður áhættustýringar
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
15.06.2026
Umsóknarfrestur
03.07.2026
Umsjónarmaður áhættustýringar
Byggðastofnun óskar eftir starfsmanni í starf umsjónarmann áhættustýringar. Starfið heyrir undir forstjóra og rekstrarsvið.
Helstu verkefni og ábyrgð
Koma að gerð og eftirfylgni áhættustefnu Byggðastofnunar
Gerð áhættuskýrslna og skýrslugjöf til stjórnar
Skýrslugerð og skýrsluskil til eftirlitsaðila og annarra hagaðila
Umsjón með afskriftarsjóði útlána
Vinna með forstöðumanni rekstrarsviðs að gerð ársreiknings og árshlutauppgjörs
Önnur verkefni í samráð við yfirmann
Hæfniskröfur
Háskólapróf á sviði viðskipta- eða hagfræði
Góð fjármálaþekking og nákvæmni í vinnubrögðum
Reynsla af greiningarvinnu, góð greiningarhæfni og færni í Excel
Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi ásamt lipurð í mannlegum samskiptum og hæfni til að vinna sjálfstætt, í hópi og undir álagi
Frekari upplýsingar um starfið
Byggðastofnun hefur það markmið að hafa innan sinna raða öflugan og jákvæðan hóp starfsmanna. Við bjóðum fjölskylduvænt starfsumhverfi og tækifæri til að þróast og þroskast í starfi líkt og niðurstöður úr árlegri starfsmannakönnun Stofnun ársins bera með sér.
Starfið er staðsett á Sauðárkróki sem er höfuðstaður Skagafjarðar og einn öflugasti byggðakjarni landsbyggðarinnar.
Starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja.
Þeir sem áhuga hafa á starfinu eru hvattir til að sækja um óháð kyni. Með umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilskrá og staðfesting á prófgráðum ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðum umsóknar og hvernig viðkomandi uppfyllir hæfniskröfur.
Umsókn skal skilað í umsóknargátt sem finna má á heimasíðu Byggðastofnunar, byggðastofnun.is sem og nánari upplýsingar um stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu í starfið liggur fyrir.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 03.07.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Byggðastofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Umsjónarmaður áhættustýringar
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
15.06.2026
Umsóknarfrestur
03.07.2026