Þjónustuaðili
Utanríkisráðuneytið
Upplýsingar um starf
Starf
Ungliðastaða á vegum Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP) á sviði skólamáltíða og matvælaaðstoðar í Lilongwe, Malaví
Staðsetning
Erlendis
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
05.08.2026
Umsóknarfrestur
27.08.2026
Ungliðastaða á vegum Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP) á sviði skólamáltíða og matvælaaðstoðar í Lilongwe, Malaví
Á vegum Sameinuðu þjóðanna (SÞ) er starfrækt ungliðaverkefni (e. Junior Professional Officer Programme) þar sem ungu fólki er gefið tækifæri á að starfa á vegum stofnana SÞ undir handleiðslu reynslumikilla sérfræðinga. Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (World Food Programme) óskar eftir að ráða ungliða á sviði skólamáltíða (e. Programme Policy Officer, School Feeding) á landaskrifstofu Matvælaáætlunar SÞ í Lilongwe, Malaví. Ungliðastöður hjá Sameinuðu þjóðunum eru opnar fyrir íslenska ríkisborgara 32 ára og yngri (fæðingarár 1993 og síðar).
Helstu verkefni og ábyrgð
Ungliðinn, sem mun tilheyra deild skólamáltíða (e. School Feeding), mun m.a. sinna eftirfarandi verkefnum undir stjórn verkefnastjóra:
Styðja stjórnvöld við stefnumótun, þróun og innleiðingu á landsáætlunum um skólamáltíðir.
Efla stofnanagetu og samstarf stjórnvalda, sveitarfélaga og þróunarsamstarfsaðila.
Styðja innleiðingu og þróun á heimaræktuðum skólamáltíðum (e. Home-Grown School Feeding) með áherslu á staðbundin innkaup og sjálfbær kerfi.
Efla sjálfbærni skólamáltíða, m.a. með stuðningi við skóla- og samfélagsgarða, hreina orkugjafa og loftslagsvænar lausnir.
Stuðla að gæðum, matvælaöryggi og næringargildi skólamáltíða í samræmi við innlenda staðla.
Styðja við áætlanagerð, framkvæmd, vöktun, gagnagreiningu og mat á árangri verkefna.
Byggja upp og viðhalda samstarfi við stjórnvöld, alþjóðastofnanir, einkaaðila og aðra samstarfsaðila, auk þess að styðja við fjármögnun verkefna.
Tryggja virka þátttöku samfélaga og samþættingu jafnréttis- og samfélagslegra sjónarmiða í allri verkefnaframkvæmd.
Hæfniskröfur
Háskólagráða á framhaldsstigi í menntunarfræði, næringarfræði, landbúnaði, opinberri stefnumótun, þróunarsamvinnu eða tengdum sviðum.
Að minnsta kosti þriggja ára starfsreynsla ef viðkomandi er með bakkalárgráðu, eða tveggja ára starfsreynsla ef viðkomandi er með mastersgráðu. Gerð er krafa um að starfsreynsla sé á sviði skólamáltíða, næringar, menntunar, félagslegrar verndar eða þróunarsamvinnu.
Reynsla af samstarfi við ríkisstofnanir og samstarfsaðila í þróunarsamvinnu.
Greiningargeta og færni í mannlegum samskiptum og samstarfi.
Mjög góð færni til að tjá sig í ræðu og riti á ensku er skilyrði. Færni í öðru SÞ-tungumáli er kostur en ekki skilyrði.
Frekari upplýsingar um starfið
Matvælaáætlun SÞ hefur umsjón með ráðningunni, en ráðið verður til eins árs með möguleika á framlengingu. Sérfræðingurinn verður starfsmaður Matvælaáætlunar SÞ og launakjör eru samkvæmt reglum stofnunarinnar.
Umsóknarfrestur er til og með 27. ágúst. Umsókn skal vera á ensku og skal umsækjandi senda inn ferilskrá á meðfylgjandi sniðmáti og kynningarbréf til utanríkisráðuneytisins í tölvupósti á netfangið jpo@utn.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Öll kyn eru hvött til að sækja um framangreint starf
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 27.08.2026
Nánari upplýsingar veitir
Jónas Haraldsson
Tölvupóstur: pol@utn.is
Þjónustuaðili
Utanríkisráðuneytið
Upplýsingar um starf
Starf
Ungliðastaða á vegum Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna (WFP) á sviði skólamáltíða og matvælaaðstoðar í Lilongwe, Malaví
Staðsetning
Erlendis
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
05.08.2026
Umsóknarfrestur
27.08.2026