Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Vinnu­eft­ir­litið

Upplýsingar um starf

Starf

Viltu taka þátt í að stuðla að heilbrigðri vinnustaðamenningu á vinnustöðum landsins?

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

29.04.2026

Umsóknarfrestur

12.05.2026

Viltu taka þátt í að stuðla að heilbrigðri vinnustaðamenningu á vinnustöðum landsins?

Við leitum að einstaklingi til að ganga til liðs við teymi sérfræðinga í vettvangsathugunum og stafrænum samskiptum.Við leggjum ríka áherslu á heilbrigða vinnustaðamenningu þar sem áhersla er á góð samskipti og lausnarmiðað og jákvætt hugarfar starfsfólks. Saman stuðlum við að bættri vellíðan og öryggi á vinnumarkaði.

Um er að ræða 100% starf með starfsstöð í Reykjavík. Starfið felst í að sinna vettvangsathugunum og stafrænum samskiptum að mestu á stórhöfuðborgarsvæðinu en einnig geta komið til verkefni á öðrum landsvæðum. Viðkomandi er mikið á ferðinni og í einhverjum tilfellum geta verið lengri ferðir.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þátttaka í skipulagningu og framkvæmd vettvangsathugana og stafrænna samskipta

  • Skýrslugerð vegna eftirlits og eftirfylgni með fyrirmælum

  • Leiðbeiningar til atvinnurekenda og starfsfólks um góða vinnuvernd með áherslu á forvarnir og heilbrigða vinnustaðamenningu

  • Þátttaka í teymisvinnu

  • Þátttaka í umbótastarfi og verkefnum sem tengjast starfinu

  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur

  • Iðn- eða háskólamenntun sem nýtist í starfi

  • Þekking eða reynsla af áhrifum vinnu á stoðkerfi starfsfólks er kostur

  • Þekking eða reynsla af áhrifum sálfélagslegs vinnuumhverfis á líðan fólks er kostur

  • Reynsla af vinnuverndar- og öryggisstörfum er kostur

  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð, auk frumkvæðis til að fylgja málum eftir

  • Góð samskiptahæfni og rík þjónustulund

  • Lausnarmiðuð nálgun og geta til að takast á við fjölbreytt verkefni með jákvæðu hugarfari

  • Góð íslensku- og enskukunnátta skilyrði

  • Hreint sakarvottorð

  • Ökuréttindi


Frekari upplýsingar um starfið


Vinnueftirlitið leggur sig fram við að skapa góðan vinnustað með heilbrigða vinnustaðamenningu þar sem áhersla er á traust, samvinnu, forvarnir og árangur. Markmiðið er að stuðla að vellíðan og öryggi starfsfólks þannig að öll komi heil heim.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum opinbers starfsfólks. Við bjóðum fjölskylduvænt starfsumhverfi og tækifæri til að þróast og þroskast í starfi.

Umsókn skal fylgja ferilskrá með upplýsingum um umsagnaraðila sem og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstudd hæfni viðkomandi. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um menntun.

Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út og öllum umsóknum verður svarað.

Vinsamlegast sækið um á alfred.is og hvetjum við öll áhugasöm til að sækja um.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 12.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Bergrún Lilja Sigurjónsdóttir

sviðsstjóri fólks, upplýsinga og þróunar

Tölvupóstur: bergrun.sigurjonsdottir@ver.is

Heimir Guðmundsson

sviðsstjóri sviðs vinnuverndar

Tölvupóstur: heimir.gudmundsson@ver.is

Þjónustuaðili

Vinnu­eft­ir­litið

Upplýsingar um starf

Starf

Viltu taka þátt í að stuðla að heilbrigðri vinnustaðamenningu á vinnustöðum landsins?

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

29.04.2026

Umsóknarfrestur

12.05.2026