Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Fjarskipta­stofa

Upplýsingar um starf

Starf

Lögfræðingur

Staðsetningar

Óstaðbundið

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

20.05.2026

Umsóknarfrestur

07.06.2026

Lögfræðingur

Fjarskiptastofa leitar að öflugum lögfræðingi á netöryggissvið stofnunarinnar. Um er að ræða spennandi starf í vaxandi málaflokki innan stofnunarinnar á sviði eftirlits með netöryggi fjarskiptafyrirtækja og mikilvægra innviða hér á landi. Í starfinu reynir á sjálfstæð vinnubrögð, getu til að vinna í teymi og framsýni. Heyrir starfið undir sviðsstjóra.

Leitað er að einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á nýjum sviðum lögfræðinnar er varða netöryggi og stafræna þróun, sterka getu til að leiða mál áfram, býr yfir ríkum umbótavilja og samskiptahæfni til að taka þátt í framkvæmd eftirlits og innleiðingu löggjafar á þessu sviði.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Mat á lagalegri hlítni mikilvægra innviða og fjarskiptafélaga við lágmarkskröfur laga á sviði netöryggis með öðrum sérfræðingum sviðsins.

  • Stjórnsýsluskoðanir á alvarlegum atvikum á sviði netöryggis og/eða netárása hjá fjarskiptafyrirtækjum og mikilvægum innviðum.

  • Þátttaka í verkefnum á sviði eftirlits með rafrænum auðkenningum og traustþjónustu.

  • Aðkoma að gerð lagafrumvarpa og reglugerða á starfsviði netöryggissviðs, þ.m.t. er varðar innleiðingu á nýju Evrópuregluverki á þessu sviði.

  • Þátttaka í innlendu og alþjóðlegu samstarfi á sviði net- og upplýsingaöryggis eftir því sem við á.

Hæfniskröfur

  • Háskólapróf á sviði í lögfræði er skilyrði.

  • Framhaldsmenntun, t.a.m. á sviði Evrópuréttar eða tækniréttar, er kostur.

  • Að minnsta kosti fimm ára reynsla sem nýtist í starfi, sér í lagi á sviði stjórnsýsluréttar, lagagerðar eða sambærilegu eftirliti er æskileg.

  • Þekking á sviði netöryggis er kostur.

  • Þekking á sviði rafrænna auðkenninga og traustþjónustu er kostur.

  • Sjálfstæð vinnubrögð.

  • Samstarfs- og samskiptahæfileikar, jákvæðni, framsækni og heilindi.

  • Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.

Frekari upplýsingar um starfið

Um er að ræða 100% starf. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra við viðkomandi stéttarfélag. Starfið getur verið óstaðbundið.

Viðkomandi ‏þarf að hafa hreint sakavottorð og forsenda ráðningar er að viðkomandi standist öryggisvottun á grundvelli varnamálalaga.


Nánar um ferlið:

Umsækjendur skulu senda inn ferilskrá (hámark 2 bls.) ásamt kynningarbréfi (hámark 1 bls.), á íslensku. Þar skal gera grein fyrir þeirri þekkingu, reynslu og hæfni umsækjanda sem nýtist til að sinna starfinu í samræmi við hæfniskröfurnar í auglýsingunni.

Umsóknir á erlendum tungumálum, án kynningarbréfa eða án ferilskráa verða ekki teknar til greina. Við ákvörðun um boðun í starfsviðtal verður sérstaklega horft til gæða umsóknargagna.

Við ákvörðun um ráðningu verður, auk framangreindra hæfnisviðmiða, tekið mið af frammistöðu í starfsviðtali og umsagna sem aflað er. Við hvetjum þau sem eru áhugasöm til að sækja um starfið, óháð kyni og uppruna.

Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. reglur um auglýsingar lausra starfa nr. 1000/2019.

Fjarskiptastofa gegnir veigamiklu hlutverki á sviði netöryggis hér á landi og er ætlað að stuðla að öryggi almennings, fyrirtækja og samfélagsins alls á sviði fjarskipta- og netöryggis. Þá skal stofnunin horfa til almannahagsmuna og þjóðaröryggis við framkvæmd eftirlits síns á þessu sviði.

Netöryggissviðið tekur til víðtækra verkefna – allt frá áhættugreiningum, úttektum og prófunum á netvörnum mikilvægra innviða til stefnumótunar og samstarfs við innlend og erlend stjórnvöld. Með samræmdri nálgun, virku samstarfi og gagnadrifnu eftirliti vinnur stofnunin að því að efla viðnámsþol íslensks samfélags gagnvart sífellt flóknari netógnum.

Sviðið fer einnig með eftirlit með rafrænum auðkenningum, rafrænum undirritunum og öðrum traustþjónustum. Þegar fram líða stundir mun það einnig sinna eftirliti tengdu stafræna auðkennisveskinu (EU Identity Wallet).

Þá hýsir netöryggissviðið Eyvöru – hæfnissetur Íslands í netöryggi. Eyvör er öflugur vettvangur fyrir fræðslu, þjálfun og samstarf sem miðar að því að efla færni, sérfræðiþekkingu og getu á sviði netöryggis.

Sjá einnig á www.fjarskiptastofa.is

Nánari upplýsingar um starfið veita Unnur Ýr Konráðsdóttir (unnur@vinnvinn.is) og Jensína Kristín Böðvarsdóttir (jensina@vinnvinn.is). Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.

Frekari upplýsingar veitir Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir, sviðsstjóri netöryggissviðs (unnur@fjarskiptastofa.is).

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 07.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili

Fjarskipta­stofa

Upplýsingar um starf

Starf

Lögfræðingur

Staðsetningar

Óstaðbundið

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

20.05.2026

Umsóknarfrestur

07.06.2026