
Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar að öflugum og reynslumiklum mannauðsráðgjafa
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
06.07.2026
Umsóknarfrestur
14.08.2026
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar að öflugum og reynslumiklum mannauðsráðgjafa
Þú vinnur sem hluti af teymi og berð ábyrgð á mannauðráðgjöf til stjórnenda starfsstöðva, auk þess að stýra stefnumótandi umbótaverkefnum.
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins er önnur stærsta heilbrigðisstofnun landsins þar sem starfa 1.100 starfsmenn. Okkar frábæra starfsfólk er á 33 starfsstöðvum, m.a. heilsugæslustöðvum, geðheilbrigðisteymum ásamt ýmis konar sérþjónustueiningum á heilbrigðissviði.
Helstu verkefni og ábyrgð
Mannauðsráðgjafi er hluti af öflugu mannauðsteymi og heyrir undir framkvæmdastjóra mannauðs. Hlutverk mannauðráðgjafa er mannauðsstuðningur við stjórnendur til að stuðla að eftirsóknarverðu starfsumhverfi, s.s. ráðningar, fræðslumál, starfsþróun, vinnuvernd og heilsueflingar, ráðgjöf um kjarasamninga og starfslok. Hjá okkur taka mannauðsráðgjafar þátt í stefnumótun og bera ábyrgð á umbótaverkefnum samhliða mannauðsráðgjöf.
Hæfniskröfur
Fókus á fólk
Hafa ástríðu og gleði af samskiptum við fólk
Mynda og rækta uppbyggjandi tengsl
Koma fram við alla af virðingu.
Mannauðsþekking
Framhaldsnám á háskólastigi sem nýtist í starfi
Hið minnsta 5 ára reynsla á sviði mannauðsmála
Reynsla af starfsumhverfi ríkisstarfsmanna æskileg
Reynsla úr heilbrigðisþjónustu kostur
Fagmennska
Ráðgjafafærni og vilji til að veita framúrskarandi þjónustu
Geta tekið skýrar ákvarðanir um flókin gögn
Skapa virði með framsýni og umbótahugsun
Frumkvæði, skipulagshæfni, sjálfstæði og öguð vinnubrögð
Samvinna
Frábær teymisfærni og jafningjastuðningur
Geta tjáð sig í ræðu og á stafrænum miðlum
Mjög góð íslenskukunnátta
Heilindi og vöxtur
Treysta og vera treystandi
Hafa skýr mannleg gildi
Vilji til að þróast og vaxa í starfi
Frekari upplýsingar um starfið
Við leitum að mannauðsráðgjafa í fullt starf til framtíðar og við viljum helst fá þig til starfa 1. september - en erum sveigjanleg.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélags.
Sendu inn ferilsskrá og kynningarbréf sem gefur góða mynd af hæfni þinni og áhuga á starfinu.
Við mat á hæfni umsækjenda verður tekið mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Öllum umsóknum verður svarað og þær gilda í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 14.08.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins leitar að öflugum og reynslumiklum mannauðsráðgjafa
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
06.07.2026
Umsóknarfrestur
14.08.2026