Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Seðla­banki Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Forstöðumaður rannsókna

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

06.05.2026

Umsóknarfrestur

18.05.2026

Forstöðumaður rannsókna

SEÐLABANKI ÍSLANDS óskar eftir að ráða metnaðarfullan leiðtoga í starf forstöðumanns rannsókna á sviði háttsemiseftirlits sem er annað tveggja eftirlitssviða bankans.

Deildin rannsóknir ber meðal annars ábyrgð á rannsóknum tiltekinna mála, undirbúningi stjórnvaldssekta og gerð sátta ásamt meðferð mála þar sem beitt er dagsektum og öðrum þvingunarúrræðum. Auk þess fer þar fram heildræn stefnumótun í tengslum við málaflokkinn.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ábyrgð á uppbyggingu deildar og faglegri þróun verkefna.

  • Dagleg verkstjórn og mótun sterkrar liðsheildar.

  • Rannsókn og meðferð mála sem tengjast brotum á lögum sem fjármálaeftirlitið hefur eftirlit með.

  • Ritun ákvarðana sem tengjast beitingu viðurlaga og þvingunarúrræða.

  • Þróun verklags tengdum rannsóknum mála.

  • Þátttaka í innra starfi Seðlabankans, stefnumótun og áætlanagerð.

  • Þátttaka í innlendu og erlendu samstarfi með stjórnvöldum og eftirlitsstofnunum.

Hæfniskröfur

  • Grunn- og meistaranám eða embættispróf í lögfræði.

  • Sterkir leiðtogahæfileikar.

  • Reynsla af daglegri verkstjórn og mannaforráðum.

  • Þekking á löggjöf sem fjármálaeftirlitið hefur eftirlit með, s.s. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum og lög um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

  • Þekking og reynsla af meðferð og vinnslu stjórnsýslumála.

  • Þekking og reynsla af meðferð og vinnslu viðurlagamála.

  • Rík greiningarhæfni.

  • Hæfni til að tjá sig og miðla upplýsingum í ræðu og riti á íslensku og ensku.

  • Góð færni í mannlegum samskiptum og árangursríkri teymisvinnu.

  • Fagleg vinnubrögð, umbótahugsun og metnaður til að ná árangri í starfi.

Frekari upplýsingar um starfið

Sótt er um starfið á heimasíðu Seðlabanka Íslands, www.sedlabanki.is/storf. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.

Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun bankans og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Umsóknir gilda í sex mánuði og öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Vakin er athygli umsækjenda á því að um ráðningarferlið gilda m.a. stjórnsýslulög nr. 37/1993, upplýsingalög nr. 140/2012 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.

Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins sem heyrir undir forsætisráðherra. Markmið bankans er að stuðla að stöðugu verðlagi, fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarfsemi. Þá skal bankinn sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem að varðveita gjaldeyrisforða og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi. Hjá Seðlabankanum starfar öflug liðsheild og leggur bankinn ríka áherslu á metnaðarfullt og hvetjandi starfsumhverfi sem einkennist af fagmennsku, heilindum, auðmýkt og áræðni.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 18.05.2026

Nánari upplýsingar veitir

Linda Kolbrún Björgvinsdóttir

framkvæmdastjóri háttsemiseftirlits

Tölvupóstur: linda.kolbrun.bjorgvinsdottir@sedlabanki.is

Íris Guðrún Ragnarsdóttir

framkvæmdastjóri mannauðs- og menningar

Tölvupóstur: iris.g.ragnarsdottir@sedlabanki.is

Þjónustuaðili

Seðla­banki Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Forstöðumaður rannsókna

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

06.05.2026

Umsóknarfrestur

18.05.2026