
Þjónustuaðili
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins
Upplýsingar um starf
Starf
Höfuðborgarsvæðið - 62,5% starf
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
62,5%
Starf skráð
06.07.2026
Umsóknarfrestur
16.07.2026
Höfuðborgarsvæðið - 62,5% starf
Vínbúðin óskar eftir að ráða starfsmann í Vínbúð á höfuðborgarsvæðinu. Við leitum að jákvæðum, glaðlyndum og þjónustuliprum einstaklingi sem er tilbúinn að veita framúrskarandi og ábyrga þjónustu. Um er ræða starf seinni part dags alla virka daga, frá kl. 14:15-18:45.
Helstu verkefni og ábyrgð
Afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini
Framstilling á vöru og vörumeðhöndlun
Umhirða búðar
Vinnutími er alla virka daga frá kl. 14:15-18:45.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Hæfniskröfur
Jákvæðni og góð þjónustulund
Hæfni í mannlegum samskiptum
Reynsla af verslunarstörfum er kostur
Almenn tölvukunnátta
Umsækjandi skal hafa náð 20 ára aldri.
Sakavottorðs er krafist.
Frekari upplýsingar um starfið
Öll áhugasöm eru hvött til að sækja um starfið á vinbudin.is. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
ÁTVR rekur 48 Vínbúðir um allt land. Stefna ÁTVR er að vera í hópi bestu þjónustufyrirtækja landsins og fyrirmynd á sviði samfélagsábyrgðar.
Við viljum að vinnustaðurinn sé lifandi og skemmtilegur og vinnum markvisst að því að auka ánægju starfsfólks.
Við leggjum áherslu á að starfsfólk fái tækifæri til að þroskast og læra nýja hluti. Þannig eflum við þekkingu og kraft fyrirtækisins.
Gildi ÁTVR eru LIPURÐ – ÞEKKING – ÁBYRGÐ. Ráðningar í stöður hjá fyrirtækinu taka mið af þessum gildum.
Starfshlutfall er 62,5%
Umsóknarfrestur er til og með 16.07.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins
Upplýsingar um starf
Starf
Höfuðborgarsvæðið - 62,5% starf
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
62,5%
Starf skráð
06.07.2026
Umsóknarfrestur
16.07.2026