Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landhelg­is­gæsla Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Vélstjóri

Staðsetningar

Höfuðborgarsvæðið

Norðurland vestra

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

04.06.2026

Umsóknarfrestur

22.06.2026

Vélstjóri

Landhelgisgæsla Íslands óskar eftir að ráða metnaðarfulla og kraftmikla einstaklinga í störf yfirvélstjóra og undirvélstjóra á varðskipum stofnunarinnar.

Hæfniskröfur

  • Takmörkuð réttindi í stöðu yfirvélstjóra og undirvélstjóraréttindi í stöðu undirvélstjóra

  • Kunnátta á ACON tölvukerfi og Helicon X3 tölvukerfi er kostur

  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfileikar

  • Snyrtimennska og góð umgengni

  • Góð almenn tölvufærni

  • Góð kunnátta í íslensku og ensku í ræðu og riti

  • Búseta á Norðurlandi er kostur vegna starfa um borð í varðskipinu Freyju


Umsækjendur þurfa að standast kröfur Landhelgisgæslunnar um líkamlegt og andlegt atgervi. Einnig skulu starfsmenn uppfylla skilyrði fyrir öryggisheimild samanber varnarmálalög nr. 34/2008 og reglugerð nr. 959/2012.

Frekari upplýsingar um starfið

Landhelgisgæsla Íslands er löggæslustofnun sem hefur það hlutverk að sinna löggæslu og eftirliti sem og leit og björgun á hafsvæðinu umhverfis Ísland. Landhelgisgæslan annast einnig framkvæmd á varnartengdum rekstrarverkefnum í umboði utanríkisráðuneytisins sbr. varnarmálalög nr. 34/2008 og samning við utanríkisráðuneytið, þ.m.t. er rekstur öryggissvæða, mannvirkja, kerfa, stjórnstöðvar og ratsjár- og fjarskiptastöðva Atlantshafsbandalagsins.
Hjá Landhelgisgæslunni starfar rúmlega 270 manna samhentur hópur sem hefur að leiðarljósi slagorðið: Við erum til taks! Gildi Landhelgisgæslunnar eru: Öryggi – Þjónusta – Fagmennska.
Nánari upplýsingar um Landhelgisgæslu Íslands má finna á: www.lhg.is.

Umsóknarfrestur er til og með 22. júní 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Umsóknir gilda í sex mánuði frá dagsetningu auglýsingar. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um. Launakjör eru skv. kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 22.06.2026

Nánari upplýsingar veitir

Helga Birna Jónsdóttir

Tölvupóstur: helga@intellecta.is

Sími: 511-1225

Þjónustuaðili

Landhelg­is­gæsla Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Vélstjóri

Staðsetningar

Höfuðborgarsvæðið

Norðurland vestra

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

04.06.2026

Umsóknarfrestur

22.06.2026