Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

DMR

Upplýsingar um starf

Starf

Laust embætti varaformanns kærunefndar útlendingamála

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starf skráð

24.06.2026

Umsóknarfrestur

03.07.2026

Laust embætti varaformanns kærunefndar útlendingamála

Dómsmálaráðuneytið auglýsir laust embætti varaformanns kærunefndar útlendingamála. Nefndarmenn eru sérfróðir um mál sem falla undir útlendingalög einkum hvað varðar dvöl og búsetu útlendinga hér á landi, málefni flóttamanna og rétt til alþjóðlegrar verndar.

Helstu verkefni og ábyrgð

Varaformaður er staðgengill formanns og sinnir ásamt honum innra starfi nefndarinnar svo sem gerð verklagsreglna, undirbúningi úrskurða nefndarinnar og þróun starfseminnar í þágu gæða og skilvirkni. Að jafnaði úrskurða tveir nefndarmenn í málum sem berast kærunefnd, sbr. 8. gr. laga um útlendinga.

Hæfniskröfur

Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 2. mgr. 29. gr. laga um dómstóla nr. 50/2016 auk eftirfarandi hæfniskrafna:

  • Þekking og reynsla á sviði stjórnsýsluréttar.

  • Þekking og reynsla af vinnslu úrskurða innan stjórnsýslunnar.

  • Þekking á málefnum útlendinga kostur.

  • Rík samskipta- og samstarfshæfni, ásamt hæfni til að leiða faglegt samstarf við ólíka hagaðila.

  • Fagmennska, frumkvæði, drifkraftur og lausnamiðuð hugsun.

  • Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.

Frekari upplýsingar um starfið

Dómsmálaráðherra skipar í embætti varaformanns kærunefndar útlendingamála til fimm ára í senn sbr. lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996. Dómsmálaráðuneytið felur nefnd að fara yfir þær umsóknir sem berast og skila ráðherra rökstuddu áliti á hæfni umsækjenda. Um laun og starfskjör varaformanns fer sbr. 39. gr. a laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.

Umsókn skal vera skrifleg og skal fylgja ítarleg ferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir færni viðkomandi til að gegna embættinu í samræmi við þær hæfniskröfur sem fram koma í 2. mgr. 29. gr. laga nr. 50/2016 og auglýsingunni. Í umsókninni skulu einnig koma fram upplýsingar um hvern og einn þeirra þátta sem tilgreindir eru í 2. mgr. 29. gr. laga nr. 50/2016 og auglýsingunni auk annarra upplýsinga sem varpað geta ljósi á faglega eiginleika og færni umsækjanda sem máli skipta. Með umsókn skulu fylgja afrit af prófskírteinum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir.

Umsóknarfrestur er til og með 3. júlí og skal senda umsókn á starf@dmr.is.

Nöfn allra umsækjenda verða birt á vef ráðuneytisins að liðnum umsóknarfresti.

Nánari upplýsingar veitir Páll Winkel, ráðuneytisstjóri (pall.winkel@dmr.is) og Unnur Helgadóttir, mannauðsstjóri í dómsmálaráðuneytinu (unnur.helgadottir@dmr.is).

Umsóknarfrestur er til og með 03.07.2026

Þjónustuaðili

DMR

Upplýsingar um starf

Starf

Laust embætti varaformanns kærunefndar útlendingamála

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starf skráð

24.06.2026

Umsóknarfrestur

03.07.2026