Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Utanrík­is­ráðu­neytið

Upplýsingar um starf

Starf

Ungliðastaða á vegum Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna á sviði verndar gegn kynbundnu ofbeldi í Kampala, Úganda

Staðsetning

Erlendis

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

05.08.2026

Umsóknarfrestur

27.08.2026

Ungliðastaða á vegum Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna á sviði verndar gegn kynbundnu ofbeldi í Kampala, Úganda

Á vegum Sameinuðu þjóðanna (SÞ) er starfrækt ungliðaverkefni (e. Junior Professional Officer Programme) þar sem ungu fólki er gefið tækifæri á að starfa á vegum stofnana SÞ undir handleiðslu reynslumikilla sérfræðinga. Flóttamannastofnun SÞ (UN High Commissioner for Refugees, UNHCR) óskar eftir að ráða ungliða á sviði verndar gegn kynbundnu ofbeldi (e. Associate Protection Officer – Gender-based violence, GBV) á landaskrifstofu UNHCR í Kampala í Úganda. Ungliðastöður hjá Sameinuðu þjóðunum eru opnar fyrir íslenska ríkisborgara 32 ára og yngri (fæðingarár 1993 og síðar).

Helstu verkefni og ábyrgð

Ungliðinn, sem mun tilheyra deild verndar (e. Protection), mun m.a. sinna eftirfarandi verkefnum undir stjórn verkefnastjóra:

  • Greiningu á þróun stjórnmála og efnahags í samhengi verndar flóttafólks og málsvarastarf í þágu mannréttinda og starfsemi UNHCR.

  • Endurgjöf á löggjöf og stefnuskjöl er snúa að málefnum flóttafólks.

  • Aðstoð við skráningu flóttafólks og ráðgjöf um réttindi og vernd flóttafólks.

  • Umsjón með einstökum málum er snúa að vernd gegn kynbundnu ofbeldi og ofbeldi gegn börnum.

  • Aðstoð við innleiðingu verkefna er snúa að fyrirbyggjandi aðgerðum gegn kynbundnu og kynferðislegu ofbeldis og áreitni.

  • Samskipti og málsvarastarf gagnvart stjórnvöldum um málefni flóttafólks.

Hæfniskröfur

  • Háskólagráða á framhaldsstigi í lögfræði, alþjóðalögum, stjórnmálafræði eða skyldum greinum.

  • Að minnsta kosti þriggja ára starfsreynsla ef viðkomandi er með bakkalárgráðu, eða tveggja ára starfsreynsla ef viðkomandi er með mastersgráðu. Gerð er krafa um að starfsreynsla sé á sviði verndar flóttafólks, mannréttinda eða alþjóðlegra mannúðarlaga.

  • Þekking á alþjóðalögum á sviði flóttafólks og mannréttinda.

  • Reynsla af vettvangi í þróunarríki er æskileg. Viðeigandi reynsla úr SÞ-kerfinu eða hjá öðrum alþjóðastofnunum er kostur.

  • Greiningargeta og færni í mannlegum samskiptum og samstarfi.

  • Mjög góð færni til að tjá sig í ræðu og riti á ensku er skilyrði. Færni í öðru SÞ-tungumáli er kostur en ekki skilyrði.

Frekari upplýsingar um starfið

UNHCR tekur ákvörðun um ráðningu en ráðið verður til eins árs með möguleika á framlengingu. Sérfræðingurinn verður starfsmaður UNHCR og launakjör eru samkvæmt reglum stofnunarinnar.

Umsóknarfrestur er til og með 27. ágúst. Umsókn skal vera á ensku og skal umsækjandi senda inn ferilskrá á meðfylgjandi sniðmáti og kynningarbréf til utanríkisráðuneytisins í tölvupósti á netfangið jpo@utn.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Öll kyn eru hvött til að sækja um framangreint starf.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 27.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Jónas Haraldsson

Tölvupóstur: pol@utn.is

Þjónustuaðili

Utanrík­is­ráðu­neytið

Upplýsingar um starf

Starf

Ungliðastaða á vegum Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna á sviði verndar gegn kynbundnu ofbeldi í Kampala, Úganda

Staðsetning

Erlendis

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

05.08.2026

Umsóknarfrestur

27.08.2026