Uppgjör dánarbúa
19. ágúst 2026
Tryggingastofnun berast reglulega beiðnir um upplýsingar vegna uppgjörs dánarbúa og telur TR mikilvægt að upplýsa vel um ferla við uppgjör dánarbúa einstaklinga sem hafa verið með greiðslur frá TR.

TR fær sjálfkrafa upplýsingar um andlát þegar það hefur verið skráð hjá Þjóðskrá og þurfa aðstandendur því ekki að tilkynna það til TR. Greiðslur til viðkomandi eru stöðvaðar í kjölfarið.
TR upplýsir síðan aðstandendur fjórum til sex vikum eftir andlát um ferli uppgjörs dánarbús, möguleg réttindi eins og til dæmis dánarbætur, barnalífeyri og þær mögulegu skyldur sem hvíla kunna á dánarbúinu.
Uppgjör dánarbúa gagnvart TR fer endanlega fram þegar staðfest skattframtal hins látna einstaklings liggur fyrir. Umboðsmenn dánarbúa eða erfingjar þurfa að sjá um að skila skattframtalinu til Skattsins. Uppgjörið hjá TR getur farið fram að vori, hausti eða í nóvember eftir því hvenær skattframtal dánarbúsins liggur fyrir. Mismunandi er því hve langur tími líður frá andláti og þar til endanlegt uppgjör gagnvart TR liggur fyrir.
Uppgjör fer fram með þeim hætti að réttindi eru reiknuð út miðað við staðfestar tekjur í skattframtali og þau réttindi borin saman við það sem viðkomandi fékk greitt. Greiðslur TR byggja á tekjuáætlunum sem einstaklingar fylla sjálfir út en við hjá TR vitum að erfitt getur verið að áætla tekjur, t.d. laun, lífeyrissjóðsgreiðslur og fjármagnstekjur fram í tímann. Því er árlega þó nokkur hópur einstaklinga sem annað hvort á inneign eða er í skuld hjá TR og á það bæði við um dánarbú sem og einstaklinga.
Ef skuld myndast við uppgjör á dánarbúi er TR skylt samkvæmt lögum að innheimta kröfuna hjá dánarbúinu eða erfingjum. Hægt er að dreifa greiðslum skulda í 12 – 36 mánuði og eru ekki lagðir vextir á hana eða annar innheimtukostnaður. Sé skiptum dánarbús lokið á grundvelli eignaleysis þá er krafan ekki innheimt.
Nánari upplýsingar um réttindi og skyldur dánarbúa gagnvart TR má finna hér: Upplýsingar á vef TR um uppgjör dánarbúa