Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Tryggingastofnun Forsíða
Tryggingastofnun Forsíða

Tryggingastofnun

TR auglýsir eftir forritara á svið stafrænnar þróunar

26. janúar 2026

Langar þig að starfa í framsæknu tækniumhverfi með öflugu, samhentu starfsfólki, þar sem áhersla er lögð á þróun og nýsköpun? Þá gæti svið stafrænnar þróunar hjá Tryggingastofnun (TR) verið rétti staðurinn fyrir þig.

Við leitum að drífandi forritara með traustan tæknilegan bakgrunn sem hefur áhuga á að byggja upp og starfa í öflugu teymi.Hjá TR færðu tækifæri til að vinna að þróun nýrra lausna, bæta og þróa núverandi kerfi og taka þátt í fjölbreyttum og krefjandi verkefnum sem styðja við stafræna þróun og sjálfvirknivæðingu þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Forritun og þróun í kerfum TR

  • Forritun og viðhald tenginga við ytri kerfi

  • Framþróun og endurbætur á upplýsingakerfum TR

  • Þátttaka í nýjungum og umbótaverkefnum á sviði Stafrænnar þróunar

Hæfniskröfur

  • Háskólapróf í tölvunarfræði, verkfræði eða öðru háskólanámi sem nýtist í starfi

  • Starfsreynsla af sambærilegum störfum er æskileg

  • Þekking og reynsla af TypeScript, React (Next.js), .NET Core, C#, REST og PL/SQL

  • Reynsla og skilningur á DevOps-ferlum (t.d. CI/CD, Azure DevOps) er kostur

  • Reynsla af Docker, Git er kostur

  • Reynsla af hönnun, þróun og viðhaldi tæknilegs arkitektúrs er kostur

  • Reynslu af teymisvinnu, t.d. Agile/Scrum

  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð

  • Góð samvinnu- og samskiptahæfni

  • Góð kunnátta í íslensku og ensku

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert. Um er að ræða tímabundið starf til eins árs með möguleika á framlengingu.Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi í starfið rökstudd.Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttisstefnu TR við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.Tryggingastofnun er þjónustustofnun sem gegnir lykilhlutverki í velferðarþjónustu á Íslandi. Hlutverk stofnunarinnar er að framfylgja lögum um almannatryggingar, lögum um félagslega aðstoð og lögum um málefni langveikra barna.Hjá TR starfa rúmlega 100 starfmenn með hátt menntunarstig og mikla fagþekkingu. Starfsfólki er boðið upp á nútímalegt vinnuumhverfi þar sem ríkir góður starfsandi, sveigjanlegur vinnutími og mikil samvinna. TR hefur hlotið jafnlaunavottun skv. ÍST 85:2012. Gildi stofnunarinnar eru traust, samvinna og metnaður. Nánari upplýsingar um Tryggingastofnun má nálgast á www.tr.is.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 04.02.2026

Nánari upplýsingar veitir

Hermann Ólason
sviðsstjóri stafrænnar þróunar.
Tölvupóstur: hermann.olason@tr.is
Sími: 897 4068

Hólmfríður Erla Finnsdóttir
mannauðsstjóri.
Tölvupóstur: holmfridur.finnsdottir@tr.is
Sími: 660 4570

Sótt er um starfið á Starfatorgi.