Fara beint í efnið
Tryggingastofnun Forsíða
Tryggingastofnun Forsíða

Tryggingastofnun

Breyting á útreikningi á dvalarkostnaði 1. júlí 2026

11. júní 2026

Frá 1. júlí næstkomandi verða breytingar á útreikningi á þátttöku einstaklinga í dvalarkostnaði á hjúkrunarheimilum, dvalarheimilum eða sjúkrahúsum.

Ný reikniregla tekur þá gildi um að eigi einstaklingur á stofnun maka sem býr á eigin heimili skal fjárhæð dvalarkostnaðar vera 70% af því sem hann hefði annars greitt samkvæmt reiknireglu yfirstandandi árs. Vegna þess mun dvalarkostnaður lækka hjá um 150 einstaklingum frá 1. júlí. Hjá öðrum verður ekki breyting á þátttöku í dvalarkostnaði.

Einstaklingar sem hefja dvöl á stofnun fyrir 1. júlí 2026 munu áfram eiga rétt á samanburði við eldri reiknireglur. Auk þess eiga þeir rétt á samanburði við nýja 70% reiknireglu ef við á.

Þau sem hefja dvöl á stofnun frá og með 1. júlí 2026 eiga ekki rétt á samanburði við eldri reiknireglur. Fyrir þá einstaklinga gildir reikniregla yfirstandandi árs og ný 70% regla ef við á.

Sjá nánar í reglugerðum:

Reglugerð um stofnanaþjónustu fyrir aldraða nr. 1580/2024.

Reglugerð nr. 231/2026 um breytingu á reglugerð um stofnanaþjónustu fyrir aldraða, nr. 1580/2024.