Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða
Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða

Þjóðskjalasafn Íslands

Vorráðstefna Þjóðskjalasafns Íslands 2025

6. maí 2025

Hver er hagur stjórnsýslunnar með skjalastjórn og skjalavörslu? Árleg vorráðstefna Þjóðskjalasafns fer fram miðvikudaginn 14. maí á Berjaya Reykjavik Natura Hotel. Yfirskrift ráðstefnunnar að þessu sinni er Hver er hagur stjórnsýslunnar með skjalastjórn og skjalavörslu?

Ráðstefnan fer fram á milli kl. 9:00 – 12:00. Hún verður einnig send út í streymi. 

Lokað hefur verið fyrir skráningu á vorráðstefnu Þjóðskjalasafns Íslands en dagskrána má sjá hér.

Um þema ráðstefnunnar: 

Hagur stjórnsýslunnar er eitt af leiðarljósunum í markmiðum laga um opinber skjalasöfn með tryggri myndun, vörslu og meðferð opinberra skjala. Sífellt reynir á hag stjórnsýslunnar og þá skiptir máli að skjalastjórn og skjalavörslu afhendingarskyldra aðila sé sinnt og sé í takt við reglur. Á ráðstefnunni verður fjallað um hver sé þessi hagur stjórnsýslunnar, hvenær reynir á hann og hvernig hann tengist öðrum þáttum í markmiðum laganna á borð við réttindi borgaranna.