Fara beint í efnið
Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða
Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða

Þjóðskjalasafn Íslands

Þroskamódel Þjóðskjalasafns í norsku fagtímariti

13. ágúst 2026

Fyrir nokkru birtist grein eftir Helgu Jónu Eiríksdóttur, skjalavörð hjá Þjóðskjalasafni Íslands og lektor í Hagnýtri skjalfræði við Háskóla Íslands, í norska fagtímaritinu INIO – Tidsskrift for informasjonsforvaltning.

Þar fjallar hún um þroskamódel Þjóðskjalasafns Íslands og áhrif þess á reglufylgni afhendingarskyldra aðila.

Þroskamódelið var þróað til að mæla stöðu skjalavörslu og skjalastjórnar hjá afhendingarskyldum aðilum. Niðurstöður reglubundinna eftirlitskannana Þjóðskjalasafns eru notaðar til að staðsetja aðila á skilgreindum þroskastigum og þannig leggja mat á stöðu þeirra á hverjum tíma.

Fjórum sinnum hafa þroskastig verið metin fyrir afhendingarskylda aðila ríkisins og þrisvar sinnum fyrir afhendingarskyldar sveitarstjórnarskrifstofur. Nú eru liðin fjórtán ár frá því að þroskastigin voru fyrst metin og hefur aðferðin reynst vel, bæði til að meta stöðu skjalavörslu og skjalastjórnar og til að hvetja afhendingarskylda aðila til að fylgja lögum og reglum.

Helga Jóna hefur jafnframt rannsakað viðhorf skjalastjóra og annarra sem starfa við skjalavörslu og skjalastjórn hjá afhendingarskyldum aðilum ríkisins til þroskamódelsins. Í greininni eru kynntar fyrstu niðurstöður þeirrar rannsóknar og benda þær til þess að viðhorf til þroskamódelsins séu mjög jákvæð.

„Þroskastigin hafa reynst jákvæður hvati og gott mælitæki, bæði fyrir Þjóðskjalasafn en ekki síður skjalastjóra, til að sýna fram á framfarir og faglegri skjalavörslu og skjalastjórn hjá afhendingarskyldum aðilum,“ segir Helga Jóna.

INIO – Tidsskrift for informasjonsforvaltning er gefið út af INIO í Noregi, stærsta fagfélagi landsins á sviði skjalavörslu og skjalastjórnar, sem hefur starfað frá árinu 1961.

Greinin er á ensku og má nálgast hana hér:

INIO – Tidsskrift for informasjonsforvaltning – 2. tbl. 2025

Nánar má lesa um þroskastig og eftirlitskannanir Þjóðskjalasafns hér.

Nánar má lesa um nám í Hagnýtri skjalfræði við Háskóla Íslands hér.

Þjóðskjalasafn Íslands

Heim­il­is­fang

Laugavegi 162

105 Reykjavík

kt. 710269-1149

Síma­tími sérfræð­inga

Mánudagar kl. 10:00 - 12:00

Miðvikudagar kl. 10:00 - 12:00

Fimmtudagar kl. 10:00 - 12:00