Skjalavörður í gagnaskil og eftirlit
31. mars 2026
Þjóðskjalasafn Íslands óskar eftir að ráða skjalavörð til starfa á skjalastjórnar- og skjalavörslusviði safnsins. Starfið er fullt starf í fageiningu gagnaskila og eftirlits.

Helstu verkefni og ábyrgð:
Ráðgjöf og eftirlit með skjalavörslu og skjalastjórn til afhendingarskyldra aðila
Vinnsla tilkynninga á rafrænum gagnasöfnum
Þátttaka í öðrum verkefnum safnsins eftir þörfum og atvikum
Menntunar- og hæfniskröfur:
BA, BS eða sambærileg prófgráða í tölvunarfræði, upplýsingafræði, sagnfræði, opinberri stjórnsýslu eða sambærilegum greinum er skilyrði
Viðbótarmenntun í skjalfræði er kostur
Þekking og/eða reynsla af skjalavörslu og skjalastjórn afhendingarskyldra aðila er æskileg
Þekking á innviðum rafrænna gagnasafna og eðli gagnasöfnunar er æskileg
Skipulögð vinnubrögð, færni í að greina aðalatriði og til að leysa flókin úrlausnarefni nauðsynleg
Góð kunnátta í algengum notendaforritum (til dæmis Office 365) er nauðsynleg
Góð kunnátta í íslensku og ensku í ræðu og riti nauðsynleg
Mjög góð samstarfshæfni, rík þjónustulund og sveigjanleiki í samskiptum
Starfshlutfall er 100% og umsóknarfrestur er til og með 12. apríl 2026. Frekari upplýsingar um starfið, hæfniskröfur og umsókn má finna á Starfatorgi ríkisins.