Fara beint í efnið
Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða
Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða

Þjóðskjalasafn Íslands

Reynslan af rafrænum skilum og varðveislu rafrænna gagna

5. júní 2026

Vorráðstefna Þjóðskjalasafns Íslands var haldin miðvikudaginn 3. júní í áttunda sinn undir yfirskriftinni „Rafræn skil og varðveisla rafrænna gagna – Lærdómar, áskoranir og leiðin fram á við.“ Líkt og fyrri ár var ráðstefnan mjög vel sótt en alls tóku vel á annað hundrað gesta þátt á staðnum og í streymi.

Frá vinstri: Bjørn Ehrenreich Riis Thorup og Jette Holmstrøm Kjellberg frá Rigsarkivet, Heiðar Lind Hansson, Þjóðskjalasafni og Bergrún Lilja Sigurjónsdóttir frá Vinnueftirlitinu

Flutt voru fjögur erindi helguð myndun, skráningu, afhendingu og varðveislu rafrænna gagna með áherslu á hvaða lærdómar hafa verið dregnir við úrlausn þessara verkefna. Tvö erindi voru flutt af sérfræðingum danska þjóðskjalasafnsins (Rigsarkivet) þar sem greint var frá reynslu, útfærslu og framtíðarsýn verkefnisins þar í landi. Umgjörð rafrænna skila á Íslandi til opinberra skjalasafna tekur mið af aðferðum sem danska þjóðskjalasafnið hefur mótað í áratugi og grundvallast á samkomulagi Þjóðskjalasafns við Rigsarkivet frá 2005.

Erindi fluttu Jette Holmstrøm Kjellberg og Bjørn Ehrenreich Riis Thorup frá danska þjóðskjalasafninu (Rigsarkivet). Jette lagði áherslu á mikilvægi gæðaeftirlits í skjalastjórn á myndunartíma gagna og fór yfir þær aðferðir sem best hafa reynst í Danmörku. Bjørn rakti í erindi sínu gildi aðferðafræðinnar við varðveislu rafrænna gagna sem Danir byggja á, kosti hennar og áskoranir, og veitti um leið innsýn í stöðu rafrænna skila í landinu og framtíðarhorfur.

Seinni hluti dagskrár var í höndum Heiðars Lind Hanssonar hjá Þjóðskjalasafni Íslands og Bergrúnar Lilju Sigurjónsdóttur hjá Vinnueftirlitinu. Erindi þeirra snertu bæði á mannauðsmálum og færni í rafrænni skjölun. Heiðar vakti athygli á nýrri mannauðsstefnu ríkisins þar sem meðal annars er stefnt að því að skilgreina lykilhæfni þvert á rikið. Þar væri eðlilegt að rafræn skjölun væri skilgreind sem lykilhæfni og myndi þá stuðla að góðum vinnubrögðum þvert á ríkið. Bergrún Lilja sagði reynslusögur af rafrænni skjölun og skjalastjórn hjá Vinnueftirlitinu og nefndi mikilvægi þess að skapa jákvæða og góða menningu í verkefninu. Þar taldi hún einnig skipta sköpum að stjórnendur gengu fram með góðu fordæmi og að hrósað væri fyrir það sem vel væri gert.

Fundarstjóri var Helga Margrét Höskuldsdóttir, sjónvarps- og íþróttafréttakona á RÚV.

Sjá nánari upplýsingar um frummælendur, heiti erinda og dagskrá hér.

Þjóðskjalasafn Íslands

Heim­il­is­fang

Laugavegi 162

105 Reykjavík

kt. 710269-1149

Síma­tími sérfræð­inga

Mánudagar kl. 10:00 - 12:00

Miðvikudagar kl. 10:00 - 12:00

Fimmtudagar kl. 10:00 - 12:00