Fara beint í efnið
Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða
Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða

Þjóðskjalasafn Íslands

Laust starf skjalavarðar

10. febrúar 2026

Þjóðskjalasafn Íslands óskar eftir að ráða þjónustulundaðan skjalavörð til starfa á miðlunar- og rannsóknarsviði safnsins. Starfið felst í afgreiðslu og svörun fyrirspurna frá viðskiptavinum Þjóðskjalasafns ásamt þátttöku í öðrum verkefnum safnsins eftir þörfum og atvikum. Um fullt starf er að ræða.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Afgreiða notendur safnsins og beiðnir um aðgang að skjölum

  • Svara skriflegum fyrirspurnum úr safnkosti

  • Ráðleggja og leiðbeina um notkun skjalasafna

  • Leiðbeina gestum í lestrarsal og veita ráð um upplýsingaleit

Hæfniskröfur

  • BA-próf í sagnfræði, lögfræði eða sambærilegum greinum

  • Menntun í skjalfræði er kostur

  • Þekking og reynsla af skjalasöfnum er æskileg

  • Þekking og reynsla af lagaumhverfi um aðgang að opinberum upplýsingum er æskileg

  • Góð kunnátta í algengum notendaforritum nauðsynleg

  • Góð kunnátta í íslensku og ensku í ræðu og riti

  • Færni í einu Norðurlandamáli er kostur

  • Mjög góð samstarfshæfni, jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum

  • Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði, frumkvæði og rík þjónustulund

Starfshlutfall er 100% og umsóknarfrestur er til og með 25. febrúar 2026. Frekari upplýsingar um starfið, hæfniskröfur og umsókn má finna á Starfatorgi ríkisins.

Þjóðskjalasafn Íslands

Heim­il­is­fang

Laugavegi 162

105 Reykjavík

kt. 710269-1149

Síma­tími sérfræð­inga

Mánudagar kl. 10:00 - 12:00

Miðvikudagar kl. 10:00 - 12:00

Fimmtudagar kl. 10:00 - 12:00