Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Þjónustuaðili

Þjóðskjala­safn Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Skjalavörður

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starf skráð

10.02.2026

Umsóknarfrestur

25.02.2026

Skjalavörður

Þjóðskjalasafn Íslands óskar eftir að ráða þjónustulundaðan skjalavörð til starfa á miðlunar- og rannsóknarsvið safnsins. Starfið snýr að afgreiðslu og svörun fyrirspurna frá viðskiptavinum Þjóðskjalasafns ásamt þátttöku í öðrum verkefnum safnsins eftir þörfum og atvikum. Um fullt starf er að ræða.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Afgreiða notendur safnsins og beiðnir um aðgang að skjölum

  • Svara skriflegum fyrirspurnum úr safnkosti

  • Ráðleggja og leiðbeina um notkun skjalasafna

  • Leiðbeina gestum í lestrarsal og veita ráð um upplýsingaleit

Hæfniskröfur

  • BA-próf í sagnfræði, lögfræði eða sambærilegum greinum

  • Menntun í skjalfræði er kostur

  • Þekking og reynsla af skjalasöfnum er æskileg

  • Þekking og reynsla af lagaumhverfi um aðgang að opinberum upplýsingum er æskileg

  • Góð kunnátta í algengum notendaforritum nauðsynleg

  • Góð kunnátta í íslensku og ensku í ræðu og riti

  • Færni í einu Norðurlandamáli er kostur

  • Mjög góð samstarfshæfni, jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum

  • Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði, frumkvæði og rík þjónustulund

Frekari upplýsingar um starfið

Þjóðskjalasafn Íslands er menningar- og stjórnsýslustofnun sem varðveitir heimildir um sögu þjóðarinnar og leiðir skjalavörslu og skjalastjórn hins opinbera. Um 50 manns starfa hjá Þjóðskjalasafni. Um þessar mundir standa yfir miklar breytingar í starfseminni og því um spennandi tækifæri að ræða fyrir kraftmikinn aðila. Nánari upplýsingar um starfsemina má finna á vefnum skjalasafn.is.

Umsóknarfrestur er til og með 25. febrúar 2026. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf (hvort tveggja á íslensku), þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra við viðkomandi stéttarfélag. Athygli er vakin á því að umsóknir gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Þjóðskjalasafns Íslands við ráðningu í starfið.

Umsóknarfrestur er til og með 25.02.2026

Nánari upplýsingar veitir

Þuríður Pétursdóttir

Tölvupóstur: thuridur@intellecta.is

Sími: 511-1225

Þjónustuaðili

Þjóðskjala­safn Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Skjalavörður

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starf skráð

10.02.2026

Umsóknarfrestur

25.02.2026