Fara beint í efnið
Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða
Þjóðskjalasafn Íslands Forsíða

Þjóðskjalasafn Íslands

Auglýst eftir starfsfólki í frágang skjalasafna og stafræna endurgerð

9. nóvember 2026

Vegna aukinna sérverkefna óskar Þjóðskjalasafn Íslands eftir að ráða starfsfólk á skjalastjórnar- og skjalavörslusvið safnsins. Helstu verkefni eru við frágang og skráningu pappírsskjalasafna og við stafræna endurgerð. Um er að ræða tímabundin störf út árið 2027 með möguleika á framlengingu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Flokkun, frágangur og skráning pappírsskjalasafna í Þjóðskjalasafni Íslands

  • Flutningur á skjalaöskjum og röðun í hillur

  • Skönnun og ljósmyndun á skjölum úr safnkosti

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi

  • Menntun í skjalfræði er kostur

  • Þekking og reynsla af skjalasöfnum er æskileg

  • Góð kunnátta í algegnum notendaforritum nauðsynleg

  • Góð íslenskukunnátta

  • Kunnátta í ensku og einu Norðurlandamáli er kostur

  • Mjög góð samstarfshæfni, jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum

  • Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði, frumkvæði og rík þjónustulund

  • Gott líkamlegt atgervi er mikilvægt þar sem burður á skjalaöskjum er hluti af starfinu

Starfshlutfall er 100% og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknafrestur er til og með 23.11.2026 en frekari upplýsingar er að finna á Starfatorgi ríkisins.

Þjóðskjalasafn Íslands

Heim­il­is­fang

Laugavegi 162

105 Reykjavík

kt. 710269-1149

Síma­tími sérfræð­inga

Mánudagar kl. 10:00 - 12:00

Miðvikudagar kl. 10:00 - 12:00

Fimmtudagar kl. 10:00 - 12:00

Afgreiðslu­tími lestr­ar­sals

Mánudaga til fimmtudaga kl. 9:30 - 16:00

Lokað á föstudögum