Nýjar stafrænar beiðnir í fjölskyldumálum
3. apríl 2024
Stafrænar beiðnir um breytt lögheimili barns, álagningu dagsekta og framlag vegna menntunar og/eða starfsþjálfunar hafa verið settar í loftið.
Það helsta:
Stafrænn beiðni - Málshefjandi fær beiðnina til rafrænnar undirritunar áður en hún er tekin til meðferðar hjá sýslumanni.
Gagnvirkt viðmót umsóknarferils.
Þægilegra viðmót og minni líkur á villum.
Nánari upplýsingar um beiðni um álagningu dagsekta: https://island.is/umgengni/thvingunarurraedi
Nánari upplýsingar um beiðni foreldris með sameiginlega forsjá um breytt lögheimili barns: https://island.is/logheimili-barns-og-ahrif-thess/agreiningur-um-logheimili-barns
Nánari upplýsingar um beiðni um fjárframlag vegna menntunar og/eða starfsþjálfunar: https://island.is/framlag-vegna-menntunar