Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Stafrænt Ísland Forsíða
Stafrænt Ísland Forsíða

Stafrænt Ísland

Hvað þarf stofnun að gera?

Stofnun sækir um aðgang að umsóknarsmið ef smíða á umsókn án aðkomu Stafrænt Íslands eða sækir um samstarf um nýþróun ef umsóknarferli krefst þess að umsókn sé sérsmíðuð.

Stofnanir geta fengið aðgang að umsóknarkerfinu í Sjórnborði Ísland.is þar sem hægt er að setja upp einföld umsóknarferli og gefa út. Til þess að stofnun fái aðgang þá þarf sækja um hér:

Umsókn um umsóknakerfi

Nýþróun á sérsmíðaðari umsókn

Ef Stafrænt Ísland metur það sem svo að mynda þurfi teymi við uppsetningu umsóknarinnar er boðað til greiningarfundar og í kjölfarið unnið eftir hugbúnaðarferlum Stafræns Íslands við framleiðslu umsóknarinnar.

Stafrænt Ísland leggur áherslu á heildstæða nálgun á alla greiningarvinnu. Til að færa umsókn inn í Umsóknarkerfi Ísland.is er þjónustan skoðuð, tilgangur ferlisins, aðgengi að gögnum og hvort einfalda megi og útskýra flæðið fyrir notandanum.

Samstarf um nýþróun við Stafrænt Ísland

Ávinningur stofnana felst í

  • einfaldari stafrænum þjónustuferlum

  • betur upplýstum notendum

  • meiri sjálfvirknivæðingu í þjónustu

  • rýmri tíma til að sinna flóknari verkefnum

Ábyrgð og eignarhald á þjónustu sem færð er yfir í umsóknarkerfið er áfram hjá stofnuninni. Við innleiðinguna eru sett upp samskipti milli innra kerfis stofnunarinnar, þar sem vinnsla erindisins eiga sér stað, og viðmótsins á Ísland.is.

Ferlið skref fyrir skref

  1. Stofnun framkvæmir frumgreiningu á hvaða umsóknarferli hafa mest vægi fyrir stofnunina og notendur.

  2. Stofnun undirbýr verkefnatillögu (vörustjóri hjá Stafrænu Íslandi getur verið þar innan handar) og sendir hana inn með samstarfsumsókn.

  3. Stafrænt Ísland tekur verkefnið til umfjöllunar.

  4. Ef verkefnið er samþykkt er myndaður verkefnahópur með fulltrúa og teymi frá Stafrænu Íslandi ásamt eiganda ferlis og sérfræðingum hjá stofnuninni.

  5. Umsóknaferlið er tekið inn í hönnunarsprett þar sem það er krufið nánar, gagnavinnslan kortlögð og frumgerð (e. prototype) kynnt fyrir hópnum.

  6. Umsóknin er síðan sett upp í umsóknarkerfinu og gefin út á Ísland.is.

  7. Kynningar- og markaðsefni er undirbúið og opnað fyrir umsóknir.