Stjórnborð
Hvað þarf stofnun að gera?
Stofnun sækir um kjarnavöru og fær í kjölfarið aðgang að stjórnborði þeirrar kjarnavöru. Í dag eru stjórnborð til fyrir eftirfarandi kjarnavörur:
Innskráningarþjónusta Ísland.is
Umsóknakerfi
Umsóknarsmiður
Greiðslur
Stafrænt pósthólf
Hvert er hlutverk Stafræns Íslands?
Tekur á móti umsóknum um kjarnaþjónustur frá stofnunum og gefur stofnun aðgang að sjálfsafgreiðslukerfi.
Sér um hönnun, þróun og daglegan rekstur stjórnborðs og sjálfsafgreiðslukerfa.
Aðstoðar prókúruhafa að gefa starfsfólki aðgang að sjálfsafgreiðslukerfum ef þarf
