Úttektaraðilar stafrænna kerfa leigubifreiðastöðva
Úttektaraðili stafrænna kerfa leigubifreiðastöðva skal uppfylla eftirfarandi skilyrði:
starfrækja stjórnkerfi á sviði gæða-og/eða upplýsingaöryggis samkvæmt viðurkenndum, alþjóðlegum stöðlum
úttektaraðili skal uppfylla kröfur samkvæmt einum af eftirfarandi stöðlum eða sambærilegar kröfur:
ISO 27001 um stjórnun upplýsingaöryggis
ISO 9001 um gæðastjórnun
vera sjálfstæður og óháður þeim aðilum sem teknir eru út, þ.e. úttektaraðili má ekki hafa:
þróað eða rekið viðkomandi kerfi
sinnt reglubundinni ráðgjöf fyrir leigubifreiðastöð sem tekin er út
átt fjárhagslegra hagsmuna að gæta
komið að hönnun kerfisins
hafa reynslu af sambærilegum úttektum á hugbúnaðar- eða upplýsingakerfum, einkum þar sem gerðar eru kröfur um öryggi, gæði og meðferð viðkvæmra gagna
úttektir skulu framkvæmdar samkvæmt viðurkenndum aðferðum við úttektir upplýsingakerfa og upplýsingaöryggis
geta sýnt fram á reynslu við framkvæmd sambærilegra úttekta, hvort heldur með:
tilteknum fjölda úttekta, eða
sambærilegri starfsreynslu sem Samgöngustofa metur fullnægjandi
hafa þekkingu á sambærilegum kerfum sem halda utan um rafræn gögn, þar með talið:
gervihnattaupplýsingar,
miðlun upplýsinga í rauntíma,
aðgangsstýringu fyrir eftirlitsaðila og neytendur
hafa þekkingu á kröfum sem lúta að gagnavernd og persónuvernd.
Ef óskað er eftir að gerast úttektaraðili stafrænna kerfa leigubifreiðastöðva skal senda póst á samgongustofa@samgongustofa.is.
Sjá nánar
Lög um leigubifreiðaakstur
Reglur um stafræn kerfi leigubifreiðastöðva
Upplýsingar um úttektir á stafrænum kerfum
