Reglur um stafræn kerfi leigubifreiðastöðva
Rekstrarleyfishafi skal tryggja skráningu gervihnattaupplýsinga um upphafs- og endastöð hverrar seldar ferðar og um staðsetningu í rafræna skrá leigubifreiðastöðvar í þeim tilgangi að tryggja öryggi og stuðla að neytendavernd og til að viðhafa megi eftirlit með því að starfsemi fari fram lögum samkvæmt. Óheimilt er að vinna staðsetningarupplýsingar í öðrum og ósamrýmanlegum tilgangi.
Rekstrarleyfishafi skal hafa afgreiðslu á leigubifreiðastöð sem fengið hefur starfsleyfi hjá Samgöngustofu. Skal hann skila leigubifreiðastöð, sem hann hefur afgreiðslu á, tilskildum upplýsingum. Einnig skal rekstrarleyfishafi tryggja að allar greiðslur séu skráðar í gjaldmæli eða skráðar með öðrum fullnægjandi hætti í þeim tilvikum þegar ferð er seld fyrir fyrirframumsamið áætlað eða endanlegt heildargjald og að upplýsingum þar um sé skilað til leigubifreiðastöðvarinnar.
Leigubifreiðastöð skal búa yfir upplýsingum um:
Rekstrarleyfishafa sem hafa afgreiðslu á leigubifreiðastöðinni.
Atvinnuleyfishafa sem stunda leigubifreiðaakstur með fólksbifreið í eigu eða undir umráðum rekstrarleyfishafa sem hefur afgreiðslu á leigubifreiðastöðinni.
Leigubifreiðar sem eru tengdar leigubifreiðastöðinni og skráningarnúmer þeirra.
Gjaldmæla og raðnúmer þeirra í leigubifreiðum sem tengdar eru leigubifreiðastöðinni og seldar eru á leigu fyrir gjald sem tekur mið af ekinni vegalengd eða þeim tíma sem ferðin tekur.
Greiðslufyrirkomulag og endanlegt heildarverð í leigubifreiðum sem tengdar eru leigubifreiðastöðinni þegar ferð er seld fyrir fyrirframumsamið áætlað eða endanlegt heildargjald áður en hún hefst.
Fjölda lausra leigubifreiða, staðsetningu þeirra og þjónustusvæði.
Leigubifreiðastöð skal jafnóðum og með stafrænum hætti safna og geyma upplýsingar sem skráðar eru í rafræna skrá. Staðsetningarupplýsingarnar skulu vera dulkóðaðar og varðveittar hjá leigubifreiðastöð í 60 daga frá því að ferð var ekin og telst leigubifreiðastöðin ábyrgðaraðili skrárinnar. Óheimilt er að vinna persónuupplýsingar í öðrum tilgangi en þeim að tryggja öryggi og stuðla að neytendavernd og til að viðhafa megi eftirlit með því að starfsemi fari fram lögum samkvæmt.
Samgöngustofa hefur eftirlit með gæðum og öryggi gagna í stafrænum kerfum leigubifreiðastöðva. Stafræn kerfi leigubifreiðastöðva skulu, á kostnað leigubifreiðastöðva, tekin út að minnsta kosti árlega af sjálfstæðum og óháðum aðila sem samþykktur hefur verið af Samgöngustofu. Sérstök áhersla skal lögð á öryggi og gæði gagna. Úttektaraðili skal gera skýrslu um framkvæmd úttektarinnar og skila til Samgöngustofu. Samgöngustofa getur látið framkvæma viðbótarúttekt telji stofnunin tilefni til. Komi í ljós verulegir annmarkar í viðbótarúttekt, sem varðað geta öryggi leigubifreiðaþjónustu, er Samgöngustofu heimilt að láta leigubifreiðastöð bera kostnað af úttektinni.
Sjá nánar
Lög um leigubifreiðaakstur
Upplýsingar um úttektir á stafrænum kerfum
Úttektaraðilar stafrænna kerfa leigubílastöðva
