Fara beint í efnið
Samgöngustofa Forsíða
Samgöngustofa Forsíða

Samgöngustofa

Eftirlit með stafrænum kerfum leigubílastöðva

Stafræn kerfi leigubifreiðastöðva eru árlega tekin út af sjálfstæðum, óháðum úttektaraðila sem Samgöngustofa hefur samþykkt.

Eftirfarandi aðilar hafa verið samþykktir:

  • BSI á Íslandi ehf.

  • KPMG

  • Syndis

Samgöngustofa áskilur sér rétt til að afturkalla samþykki sitt og fjarlægja af lista yfir samþykkta úttektaraðila ef viðkomandi uppfyllir ekki lengur kröfur sem Samgöngustofa gerir til verkefnisins.

Úttektir miða meðal annars að öryggi og gæðum gagna, skráningu, miðlun, varðveislu þeirra, aðgengi eftirlitsaðila að upplýsingum, því að kerfi uppfylli kröfur um gagnavernd, dulkóðun og aðgangsstýringu, og áreiðanleika rafrænna skráa, meðal annars um gervihnattaupplýsingar, upplýsingar um rekstrarleyfishafa og atvinnuleyfishafa, auðkenni ökutækja, verðupplýsingar, greiðlusfyrirkomulag, fjölda lausra leigubifreiða, staðsetningu þeirra og þjónustusvæði. Leigubifreiðastöðvar bera kostnað af árlegum úttektum.

Samgöngustofa hefur eftirlit með gæðum og niðurstöðum úttekta og getur látið framkvæma viðbótarúttekt, telji stofnunin tilefni til.

Sjá nánar

Lög um leigubifreiðaakstur
Reglur um stafræn kerfi leigubílastöðva
Úttektaraðilar stafrænna kerfa leigubílastöðva