Klínískar prófanir og virknirannsóknir
Lögum samkvæmt skal framleiðandi lækningatækis senda Lyfjastofnun umsókn um klíníska rannsókn á lækningatæki og umsókn um virknirannsókn á lækningatæki til sjúkdómsgreiningar í glasi.
Stofnunin hefur eftirlit með því að framkvæmd rannsóknar sé í samræmi við reglur um góða starfshætti og lög um réttindi sjúklinga, þar með talið ákvæði um rannsóknir og mat vísindasiðanefndar. Lyfjastofnun getur stöðvað framkvæmd rannsóknar sé skilmálum ekki fylgt.
Klínískar rannsóknir og virknirannsóknir eru framkvæmdar til staðfestingar á því að almennar kröfur um öryggi og nothæfi séu uppfylltar við venjuleg skilyrði við fyrirhugaða notkun tækis. Jafnframt er lagt mat á óæskilegar aukaverkanir fyrir lækningatæki, og virknieiginleika fyrir lækningatæki til sjúkdómsgreiningar í glasi, ásamt því að meta hvort hlutfall ávinnings og áhættu er ásættanlegt.
Samkvæmt skilgreiningu eru klínískar rannsóknir allar kerfisbundnar rannsóknir á mönnum sem ná til eins eða fleiri þátttakenda og eru framkvæmdar til að meta öryggi eða virkni lækningatækis.
Ákvæði um klínískar rannsóknir og virknirannsóknir má finna í VI. kafla reglugerðanna 745/2017 um lækningatæki (MDR) og 746/2017 um lækningatæki til sjúkdómsgreiningar í glasi (IVDR). Viðkomandi aðilar skulu kynna sér ákvæðin vandlega.
Hægt er að styðjast við alþjóðlega staðalinn við gerð rannsókna, ISO 14155:2026 „Clinical investigation of medical devices for human subjects – Good clinical practice“. Einnig er hægt að styðjast við leiðbeiningar framkvæmdarstjórnar Evrópusambandsins.
Tilkynningarskylda
Tilkynningarskylda um rannsóknir eða prófanir, samkvæmt ákvæðum reglugerðanna, fer eftir því hvort lækningatækið beri nú þegar CE-merkingu og hvaða tilgang rannsóknin eða prófunin hefur.
Nauðsynlegt er að sækja um leyfi Vísindasiðanefndar vegna rannsóknar og prófana á lækningatækjum, eftir nánari leiðbeiningum nefndarinnar.
Hvenær þarf að leggja fram umsókn?
Senda þarf umsókn til Lyfjastofnunar ef virknirannsókn:
Felur í sér sýnatöku með skurðaðgerð sem framkvæmd er eingöngu vegna virknirannsóknarinnar.
Er inngripsbundin klínísk virknirannsókn, þar sem niðurstöður prófunarinnar geta haft áhrif á ákvarðanir um meðferð sjúklings og/eða verið notaðar til að leiðbeina meðferð.
Felur í sér viðbótar ífarandi aðgerðir eða aðra áhættu fyrir þátttakendur rannsóknarinnar, jafnvel þótt sú áhætta tengist ekki sýnatökunni sjálfri.
Felur í sér fylgigreiningarpróf (companion diagnostics) og ekki er eingöngu notast við afgangssýni.
Hvenær þarf að senda inn tilkynningu?
Senda þarf tilkynningu til Lyfjastofnunar ef virknirannsókn:
Snýr að fylgigreiningarprófi þar sem eingöngu eru notuð afgangssýni, sbr. 2. mgr. 58. gr. IVDR.
Metur CE-merkt tæki innan ætlaðs tilgangs þess og felur í sér viðbótaraðgerðir fyrir þátttakendur sem eru ífarandi eða íþyngjandi, sbr. 1. mgr. 70. gr. IVDR.
Myndin hér að neðan er úr leiðbeiningarskjali Medical Device Coordination Group (MDCG), “MDCG 2025-5 Questions and Answers regarding performance studies of in vitro diagnostic medical devices under regulation (EU) 2017/746“
Leiki vafi á hvort ákveðin rannsókn eða prófun sé tilkynningarskyld til Lyfjastofnunar er hægt að hafa samband við stofnunina og óska eftir frekari upplýsingum.
Umsóknir
Umsóknir um klínískar rannsóknir og virknirannsóknir skulu berast Lyfjastofnun í gegnum gáttina hafa samband og í framhaldi mun Lyfjastofnun óska eftir viðeigandi gögnum. Þegar innleiðingu á EUDAMED hefur verið að fullu lokið munu umsóknir um klínískar prófanir og virknirannsóknir færast alfarið þangað. Gjald er tekið samkvæmt gjaldskrá Lyfjastofnunar.
Skýrsluskil
Lok rannsóknar eða prófunar samkvæmt áætlun
Tilkynna skal Lyfjastofnun um lok klínískrar rannsóknar eigi síðar en 15 dögum eftir að rannsókn lýkur.
Eftir að rannsókn lýkur skal skila inn til Lyfjastofnunar lokaskýrslu eins fljótt og unnt er og eigi síðar en 12 mánuðum eftir lok rannsóknarinnar. Lokaskýrslan skal innihalda gagnrýnið mat á öllum gögnum sem aflað var í rannsókninni.
Rannsókn eða prófun er hætt fyrr en áætlað var eða er stöðvuð tímabundið
Ef hætta þarf klínískri rannsókn eða prófun fyrr en áætlað var, eða rannsókn/prófun er stöðvuð tímabundið, skal tilkynna Lyfjastofnun um það innan 15 daga og gera grein fyrir ástæðu þess að rannsókninni var hætt eða hún stöðvuð.
Ef rannsókn er stöðvuð eða henni hætt af öryggisástæðum skal tilkynna það innan 24 klukkustunda.
Ef rannsókn er hætt fyrr en áætlað var skal lokaskýrslu skilað eins fljótt og unnt er og eigi síðar en 3 mánuðum eftir að rannsókninni var hætt.
Lokaskýrslan skal innihalda gagnrýnið mat á öllum gögnum sem safnað var fram að lokum rannsóknarinnar.
Lesa má frekari leiðbeiningar varðandi gerð lokaskýrslu og í Guidance on the publication of the clinical investigation reports and their summaries in the absence of EUDAMED. Annars skal kynna sér 77.gr. MDR og 73.gr. IVDR, eftir því sem við á.
Tímalínur
Tímaháð verklag | Hámarks dagafjöldi |
Tími til fullgildingar á umsókn um klíníska rannsókn eða prófun eftir staðfestingu Lyfjastofnunar á móttöku | 10 - 15 |
Mat Lyfjastofnunar er að umsóknin sé ófullnægjandi eða falli ekki undir reglugerðirnar. Tími sem umsækjandi hefur rétt á til að gera athugasemdir eða klára umsóknina. | 10 - 35 |
Tími til fullgildingar umsóknar eftir að viðbótargögn eða athugasemdir berast Lyfjastofnun | 5 – 10 |
Tími til mats á umsókn þar sem heimild Lyfjastofnunar er áskilin | 45 |
Tími til mats á umsókn þar sem heimild Lyfjastofnunar er áskilin en þörf er á samráði við sérfræðinga | 65 |
Tími til mats á breytingum á áður samþykktri klínískri rannsókn eða prófun | 38 |
Tími til mats á breytingum á áður samþykktri klínískri rannsókn eða prófun sem þarfnast samráðs við sérfræðinga | 45 |
Tími til að tilkynna um að klínískri rannsókn eða prófun sé lokið | 15 |
Tími til að tilkynna um að rannsókn eða prófun sé stöðvuð af öryggisástæðum | 1 |
Tími til skila á lokaskýrslu eftir að rannsókn eða prófun var hætt fyrr en áætlað var | 90 |
Tími til skila á lokaskýrslu eftir að rannsókn eða prófun var lokið samkvæmt áætlun | 365 |
Nánari upplýsingar um mismunandi málsmeðferð klínískra rannsókna og hvenær heimild Lyfjastofnunar þarf að liggja fyrir áður en rannsókn hefst má finna í 70. gr. MDR.
