Fara beint í efnið
Lyfjastofnun Forsíða
Lyfjastofnun Forsíða

Lyfjastofnun

Notkun lækningatækja

Notandi lækningatækis er hver sá einstaklingur sem notar tækið, hvort sem um ræðir heilbrigðisstarfsmann eða annan notanda.

Eigendur og notendur bera ábyrgð á öruggri notkun og viðhaldi lækningatækja í samræmi við gildandi lög og leiðbeiningar.

Öllum þeim sem framleiða, selja, dreifa, eiga eða nota lækningatæki og vita um atvik, frávik, galla eða óvirkni, sem kynni að valda eða hefur valdið heilsutjóni eða dauða notanda, ber skylda til að tilkynna Lyfjastofnun um slíkt.

Heilbrigðisstarfsfólk, notendur og sjúklingar eru hvattir til þess að tilkynna um öll atvik sem grunur er um. Lyfjastofnun hvetur einnig alla eigendur lækningatækja til að tilkynna rekstraraðila tækisins um öll atvik sem tengjast notkun þess.

Notkunarleiðbeiningar

Almennt er gerð krafa um að lækningatækjum fyrir almenning fylgi notkunarleiðbeiningar á íslensku.


Öryggis- og gæðakröfur

CE-merking er staðfesting á því að lækningatæki uppfylli allar öryggis- og gæðakröfur sem kveðið er á um í Evrópulöggjöf.

CE-merki sýnir að tækið hefur farið í gegnum strangt mat og samræmist kröfum um hönnun, framleiðslu og notkun. Merkið er þannig trygging fyrir því að tækið sé öruggt og henti til notkunar innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES). Til að staðfesta lögmæti CE-merkis ætti framleiðandi alltaf að geta veitt svokallaða samræmisyfirlýsingu (e. Declaration of Conformity).

Samræmisyfirlýsing er opinbert skjal þar sem framleiðandi staðfestir að tækið uppfylli allar kröfur sem settar eru fram í viðeigandi reglugerðum. Hins vegar eru ekki öll lækningatæki CE-merkt. Það þýðir þó ekki endilega að þau séu ólögleg eða óörugg.

Dæmi um tæki sem ekki þurfa að bera CE-merki eru sérsmíðuð lækningatæki, kerfi eða sett lækningatækja (e. systems and procedure packs), auk lækningatækja sem notuð eru í klínískum rannsóknum. Þessar undantekningar eru í samræmi við reglur og tryggja að tækin séu samt sem áður örugg og lögleg til notkunar.


Eigendur lækningatækja sem notuð eru í þágu annarra

Eigendur lækningatækja sem notuð eru í þágu annarra geta verið til dæmis heilbrigðisstofnanir og snyrtistofur.

Eigendur lækningatækja sem notuð eru í þágu annarra geta verið af ýmsum toga. Sem dæmi má nefna sjúkraflutningsaðila, sjúkrahús, heilsugæslustöðvar, snyrtistofur, o.fl. Slíkir aðilar eiga oft lækningatæki sem eru notuð til að meðhöndla einstaklinga sem njóta þjónustu þeirra. Slíkir eigendur bera lagalega ábyrgð á lækningatækjum sínum í samræmi við gildandi lög og reglugerðir um lækningatæki.

Samkvæmt lögum nr. 132/2020 um lækningatæki og Evrópureglugerð 2017/745 (MDR) ber einstaklingum, lögaðilum eða heilbrigðisstofnunum sem eiga eða bera ábyrgð á notkun lækningatækis að tryggja að ákveðin skilyrði séu uppfyllt.

Umsókn um undanþágu á CE merkingu lækningatækja

Lyfjastofnun

Heim­il­is­fang

Lyfjastofnun

Vínlandsleið 14

113 Reykjavík

Opnun­ar­tími

Móttaka

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. Lokað

Þjónustuver

Mán. til fim. 9:00 - 15:00

Fös. 9:00 - 12:00