Þjónustuver Landspítala
Þjónustuver Landspítala svarar almennum fyrirspurnum um starfsemi spítalans og aðstoðar þig við að finna réttar upplýsingar eða komast í samband við réttan aðila.
Hvernig getur þjónustuver aðstoðað?
Þú getur leitað til þjónustuvers vegna meðal annars:
Leiðbeininga um tímabókanir og breytingar á bókuðum tímum
Fyrirspurna um bið eftir rannsóknum eða aðgerðum
Upplýsinga um hvernig hægt er að koma skilaboðum til heilbrigðisstarfsfólks
Opnunartíma og staðsetningu deilda
Annarra almennra fyrirspurna um þjónustu og starfsemi spítalans
Þjónustuver veitir upplýsingar og vísar erindum áfram til réttra aðila eftir því sem við á.
Þjónustuver er opið:
virka daga frá 7:30 til 21.
helgar og helgidaga frá 9 til 21.
Símtöl eru hljóðrituð. Öryggisverðir svara erindum utan opnunartíma.
Hafa samband
Sími: 543 1000
Netspjall: Hafðu samband við þjónustuver í netspjalli hér á vefsíðunni.
Senda fyrirspurn: Sendu erindi í gegnum fyrirspurnarformið hér fyrir neðan.
Almenn fyrirspurn
