Stefnur og starfsáætlun
Gæðamál á Landspítala
Örugg og árangursrík þjónusta er höfuðmarkmið Landspítala og endurspeglast í stefnu og starfsáætlun Landspítala og gæðastefnu spítalans (pdf). Til að tryggja gæði eru árangursmælingar og virk gæðastýring ástunduð. Stuðst er við aðferðafræði gæðastjórnunar í umbótastarfi. Lærdómur er dreginn af atvikum sem koma upp og ábendingar nýttar til umbóta.
Örugg þjónusta
Umbætur eru stöðugar því ávallt er hægt að gera betur.
Sett eru markmið í starfseminni og þeim fylgt eftir með skilgreindum árangursmælingum.
Úrvinnsla atvika er samkvæmt skilgreindu verklagi.
Ábendingar sjúklinga og starfsmanna eru nýttar til umbóta.
Gegnsæi og opin umræða er hér lykilatriði. Öryggismenning er þannig styrkt í sessi.
Áhættustýring til að fyrirbyggja og forgangsraða
Tölvukerfi, ferlar, verklag og skipulag eru í sífelldri þróun svo þau styðji sem best við starfsmenn, komi í veg fyrir villur og vari við ef öryggi sjúklinga eða starfsmanna er ógnað.
Áhætta í starfsemi er metin daglega á stöðumatsfundum á öllum starfseiningum og spítalanum í heild til að tryggja öryggi og forgangsraða verkefnum.
Tækifærum til úrbóta er forgangsraðað út frá áhættumati.
Besta þekking er höfð að leiðarljósi.
Verklag er samræmt eins og kostur er og byggir á gagnreyndri þekkingu.
Verklag er skjalfest í gæðahandbók Landspítala sem er aðgengileg öllum starfsmönnum.
