Öryggismál og rafræn vöktun
Efnisyfirlit
Rafræn vöktun
Vegna öryggis- og eignavörslu er rafræn vöktun með myndavélum og upptökubúnaði í almenningsrýmum og á lóðum Landspítala.
Upptökur
Staðsetning myndavéla skal vera þannig að ekki sjáist inn í vistunar- eða meðferðarrými sjúklinga eða einkarými starfsmanna.
Vöktun með leynd í húsnæði eða á lóðum Landspítala er með öllu óheimil.
Upptökur fara eingöngu fram þegar hreyfing er á hinu vaktaða svæði.
Tilgangur
Óheimilt er að nota upplýsingar sem safnað er með rafrænni vöktun til að fylgjast með mætingu eða vinnuskilum starfsfólks.
Vinnsla gagna
Upplýsingatæknideild og öryggisstjóri Landspítala
hafa umsjón með vinnslu og eyðingu upplýsinga sem aflað er með rafrænni vöktun.
stýrir aðgangi að eftirlitsmyndavélum með sama hætti og að tölvukerfum Landspítala.
fela tilteknum starfsmönnum takmarkaðan og tímabundinn aðgang til vinnslu upplýsinga sem aflað er með rafrænni vöktun.
Varðveisla gagna
Upplýsingar sem verða til með rafrænni vöktun skal ekki varðveita lengur en málefnaleg ástæða er til og aldrei lengur en í 30 daga.
Afhending gagna
Öryggisstjóri tekur ákvörðun um afhendingu gagna, aflað með rafrænni vöktun samkvæmt skriflegri beiðni lögreglu. Efni sem verður til við rafræna vöktun er ekki unnið eða afhent öðrum nema samkvæmt dómsúrskurði. Landspítali heldur skrá um afhent efni úr eftirlitskerfinu.
