Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Öryggismál og rafræn vöktun

Rafræn vöktun

Vegna öryggis- og eignavörslu er rafræn vöktun með myndavélum og upptökubúnaði í almenningsrýmum og á lóðum Landspítala.

Upptökur

  • Staðsetning myndavéla skal vera þannig að ekki sjáist inn í vistunar- eða meðferðarrými sjúklinga eða einkarými starfsmanna.

  • Vöktun með leynd í húsnæði eða á lóðum Landspítala er með öllu óheimil.

  • Upptökur fara eingöngu fram þegar hreyfing er á hinu vaktaða svæði.

Tilgangur

Óheimilt er að nota upplýsingar sem safnað er með rafrænni vöktun til að fylgjast með mætingu eða vinnuskilum starfsfólks.

Vinnsla gagna

Upplýsingatæknideild og öryggisstjóri Landspítala

  • hafa umsjón með vinnslu og eyðingu upplýsinga sem aflað er með rafrænni vöktun.

  • stýrir aðgangi að eftirlitsmyndavélum með sama hætti og að tölvukerfum Landspítala.

  • fela tilteknum starfsmönnum takmarkaðan og tímabundinn aðgang til vinnslu upplýsinga sem aflað er með rafrænni vöktun.

Varðveisla gagna

Upplýsingar sem verða til með rafrænni vöktun skal ekki varðveita lengur en málefnaleg ástæða er til og aldrei lengur en í 30 daga.

Afhending gagna

Öryggisstjóri tekur ákvörðun um afhendingu gagna, aflað með rafrænni vöktun samkvæmt skriflegri beiðni lögreglu. Efni sem verður til við rafræna vöktun er ekki unnið eða afhent öðrum nema samkvæmt dómsúrskurði. Landspítali heldur skrá um afhent efni úr eftirlitskerfinu.