Miðstöð sjúklingafræðslu á Landspítala
Gerð fræðsluefnis og útgefið efni
Gerð fræðsluefnis fyrir sjúklinga á Landspítala
Á Landspítala er fræðsluefni fyrir sjúklinga og aðstandendur unnið samkvæmt skilgreindu verklagi. Við gerð efnis er stuðst við gátlista og leiðbeiningar sem tryggja samræmda uppbyggingu, skýra framsetningu og faglegt innihald.
Ritstjórn sjúklingafræðslu hefur umsjón með ferlinu. Hún veitir ráðgjöf, yfirfer allt efni og sér um áframhaldandi vinnslu, þar á meðal uppsetningu í samstarfi við grafískan hönnuð þegar við á.
Fræðsluefni er unnið í mismunandi formi eftir eðli viðfangsefnis, til dæmis sem skriflegt efni eða stutt myndbönd.
Að lokinni útgáfu er efnið vistað í gæðahandbók og birt á ytri vef Landspítala. Efni er endurskoðað reglulega, yfirleitt á 12–36 mánaða fresti.
Fræðsluefni er jafnframt miðlað til sjúklinga með rafrænum hætti, til dæmis í gegnum Heilsuveru, úr sjúkraskrárkerfum eða með tölvupósti.
Leiðbeiningar um gerð fræðsluefnis og mat á gæðum
Útgefið fræðsluefni á Landspítala
Hér er að finna fræðsluefni sem Landspítali hefur gefið út.
Fræðsluefni er stundum gefið út á myndböndum hér er dæmi um slíkt: Skurðaðgerð í svæfingu - ferli sjúklings
