Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Menningarnæm fræðsla

Þegar kemur að sjúklingafræðslu er mikilvægt að geta verið viss um að öll fræðsla komist til skila. Heilsulæsi er skilgreint sem hæfileiki einstaklings til að afla sér, skilja og nýta þær upplýsingar sem hann fær varðandi heilsu sína.

Rannsóknir sýna að ein helsta orsök á verra heilsufari nýbúa miðað við aðra íbúa viðkomandi lands er skert heilsulæsi og það eru vísbendingar um að heilsu nýbúa fari hrakandi strax frá upphafi búsetu í nýju landi.

Ástæður þessa eru meðal annars skertur aðgangur að heilbrigðiskerfinu vegna tungumálaerfiðleika og lítið sem ekkert aðgengi að fræðsluefni á miðli eða tungumáli sem hentar viðkomandi.

Samtöl vega þungt þegar kemur að sjúklingafræðslu. Þekking og áhugi á annarri menningu og virðing fyrir þeim samskiptareglum sem gilda hjá mismunandi hópum skiptir miklu máli í slíkum samskiptum. Gott er að hafa eftirfarandi hluti í huga þegar kemur að samskiptum / fræðslu til skjólstæðings sem talar erlent tungumál og kemur frá öðrum menningarheimi en við.

Mikilvæg atriði sem þarf að hafa í huga við sjúklingafræðslu erlendra skjólstæðinga