Miðstöðin er leiðandi í þróun sjúklingafræðslu innan Landspítala þ.m.t. gerð ferilgreininga og ferla um gerð fræðsluefnis, þjálfun starfsfólks og sjúklinga, innleiðingu nýrra kennsluaðferða og miðla og rannsókna á áhrifum þeirra. Hún aðstoðar starfsfólk við verkefni er tengjast umbótum í sjúklingafræðslu. Hún er í samstarfi við viðeigandi aðila um innleiðingu fullnægjandi skráningar um fræðslu.
Miðstöðin ber ábyrgð á frumútgáfu og endurskoðun fræðsluefnis á vegum Landspítala, í nánu samstarfi við klíníska starfsmenn. Þetta á jafnt við um fræðsluefni á vefsíðu, prentað efni og myndefni.
Miðstöðin er fulltrúi Landspítala út á við í samstarfi um fræðslu til sjúklinga, aðstandenda og almennings. Hún hefur frumkvæði að samræmingu og samstarfi við ytri aðila til að tryggja aðgengi sjúklinga, aðstandenda og almennings að fræðslu.
Miðstöðin ber ábyrgð á að fylgjast með hvað er efst á baugi í sjúklingafræðslu, hérlendis sem og erlendis og miðlar því til starfsmanna.
Miðstöðin er í samstarfi við háskóla um þróun starfseminnar, s.s. rannsóknarverkefni og menntun heilbrigðisstétta um sjúklingafræðslu.
Innan miðstöðvarinnar starfar ritstjórn sjúklingafræðsluefnis og stýrinefnd til ráðgjafar. Sjá hér neðar í lista "Ritstjórn og ritstjórnarstefna."