Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Heilaáverki - Upplýsingarit

Heili og taugakerfi
Slys og áverkar

Heilaáverki verður af völdum höfuðhöggs eða annarra utanaðkomandi krafta. Heilaáverka má flokka sem væga, miðlungs eða alvarlega eftir alvarleika einkenna og niðurstöðum rannsókna á bráðadeild. Hér verður fjallað um væga heilaáverka

Fyrstu áhrif vægra heilaáverka

Fyrstu áhrif vægra heilaáverka geta verið mismikil.

  • Allt frá því að fólk er ringlað í stutta stund

  • til þess að það rotast og er meðvitundarlaust í nokkrar sekúndur eða mínútur.

Í kjölfarið getur fylgt skert meðvitund eða svefnhöfgi, höfuðverkur, flökurleiki og uppköst og minnistap kringum sjálfan atburðinn.

Heilinn þarf tíma til að ná sér eftir áverka og á meðan er starfsemi hans skert.

Afleiðingar vægra heilaáverka

Þegar frá líður geta afleiðingar vægra heilaáverka birst á ýmsan hátt.

  • Hjá flestum einstaklingum hverfa þessi einkenni á nokkrum dögum eða vikum.

  • Nokkur hluti þeirra sem verða fyrir vægum heilaáverka kvartar undan einkennum í mánuði eða ár

  • Stundum verða einkennin varanleg.

Lýsing á nokkrum algengum afleiðingum heilaáverka og hvers þarf að gæta

Mikilvægt er að forðast óhóflega áreynslu, álag og streitu

En ekki er ráðlegt að leggjast í rúmið og bíða eftir bata.

  • Mælt er með hæfilegri örvun og að takast á við fjölbreytt verkefni og aðstæður eftir því sem úthald leyfir.

  • Rétt er að hafa reglu á daglegu lífi, vakna á sama tíma og setja sér verkefni yfir daginn.

  • Byrja þarf hægt og auka álagið smátt og smátt. Þetta hjálpar til við að ná fyrri færni á ný.

  • Forðast ber áfengi og önnur vímuefni. Sá sem orðið hefur fyrir vægum heilaáverka er viðkvæmari fyrir áhrifum þessa. Áfengi og önnur vímuefni seinka bata og auka hættu á fylgikvillum og endurteknum slysum.

Ýmis einkenni vægra heilaáverka, til dæmis svimi, sjóntruflanir, hægara hugarstarf og einbeitingarerfiðleikar, hafa áhrif á hæfni í umferðinni.

  • Því er mælt með að aka ekki bifreið eða mótorhjóli eða hjóla á reiðhjóli þar til þessi einkenni eru sem mest horfin.

  • Þegar einkennin verða viðvarandi er mælt með ökumati.

Endurtekinn vægur heilaáverki með stuttu millibili getur leitt til alvarlegs heilaskaða

  • Eftir heilaáverka þarf því að forðast eins og hægt er aðstæður þar sem auknar líkur eru á því að verða fyrir höfuðhöggi, til dæmis boltaíþróttir og ýmis líkamlega erfið störf.

  • Það fer svo eftir því hvað heilaáverkinn var alvarlegur hversu lengi þarf að forðast slíkar aðstæður og rétt að ákveða það í samráði við lækni.

Að fara aftur að vinna

Það ræðst bæði af bata og starfi hvers og eins hvenær hægt er að byrja að vinna aftur. Ef vinnustaðurinn er hávaðasamur og enn ber á viðkvæmni fyrir hávaða, getur verið erfitt að sinna starfinu vel.

  • Á erilsamri skrifstofu þarf fólk að vera betur vakandi, einbeittara og sneggra en ef um er að ræða rólegan vinnustað þar sem hægt er að haga vinnunni eftir líkamlegri og andlegri líðan þar til bata er náð.

  • Skynsamlegt er að fara sér hægt í fyrstu og vinna aðeins hluta úr degi.

  • Í byrjun er oft hæfilegt að vinna í tvo til þrjá tíma meðan orkan leyfir, en þegar þreyta segir til sín og vinnuafköstin minnka er best að fara heim og hvíla sig svo hægt sé að mæta endurnærð/ur næsta dag.

Að byrja aftur í skóla

Ef fólk er í námi þarf að taka sér hvíld frá því. Þegar farið er að sækja skóla aftur þarf að fara sér hægt í byrjun. Margir finna fyrir þeim einkennum sem lýst hefur verið.

  • Til dæmis getur verið erfiðara að einbeita sér í kennslustundum.

  • Stundum þarf lengri tíma en áður til að vinna verkefni og smáatriði gleymast.

  • Hávaði í tímum getur verið pirrandi og fólk þreytist mun fyrr.

  • Nauðsynlegt er að láta kennara, námsráðgjafa og skólastjórnendur vita af heilaáverkanum svo þeir geti sýnt aukinn sveigjanleika hvað varðar heimavinnu, verkefnaskil og yfirferð í námi.

  • Stundum er mælt með aðstöðu í skólanum þannig að nemandi geti hvílt sig þegar hann verður þreyttur.

  • Oft er þörf á einkakennslu innan skóla eða utan meðan nemandi er að ná fyrri færni.

Ef frekari upplýsinga er þörf

Eða ef einkenni sem hér hefur verið lýst ganga ekki yfir á 2 til 3 mánuðum, er:

  • rétt að leita til heimilislæknis.

  • hægt að hafa samband við göngudeild endurhæfingardeilda Landspítala á Grensási í síma 543 1000.

Heilaáverki - Upplýsingarit (.pdf)