Göngudeild kransæðasjúkdóma og Sidekick Health appið
Göngudeild kransæðasjúkdóma í samstarfi við Sidekick Health frá apríl 2026 - 2028
Nýleg rannsókn á notkun Sidekick Health appsins á Göngudeild kransæðasjukdóma á Hjartagátt 10D, sýndi fram á gagnsemi þess fyrir okkar skjólstæðinga. Því bjóðum við skjólstæðingum okkar, þeim að kostnaðarlausu, að nota appið samhliða hefðbundinni göngudeildarþjónustu. Um tveggja ára samstarf er að ræða sem verður endurskoðað.
Sidekick Health sérhæfir sig í stafrænni heilbrigðisþjónustu og var fyrirtækið stofnað af tveimur íslenskum læknum. Allt efni er á íslensku, unnið í samvinnu við heilbrigðisstarfsfólk hjartaþjónustunnar á Landspítala og sniðið að þörfum þeirra sem hafa greinst með kransæðasjúkdóm.
Náð er í appið með sérstökum innskráningarkóða sem er sendur skjólstæðingum Göngudeildar kransæðasjúkdóma í smáskilaboðum (SMS) eftir útskrift. Sömuleiðis er hægt að nálgast kóðann í kynningarbæklingi hjá riturum Hjartagáttar. Gert er ráð fyrir að hver og einn hafi appið í eitt ár og þú ákveður sjálf/ur hversu virkur notandi þú vilt vera.
Í appinu getur þú meðal annars:
Skráð sjúkdómseinkenni sem hjúkrunarfræðingar á Göngudeild kransæðasjúkdóma vakta í 12 mánuði.
Skráð líðan og venjur og fylgst með framvindu þinni.
Fengið persónulega endurgjöf um lífstíl frá heilsuþjálfa í 6 mánuði.
Fengið fræðslu um kransæðasjúkdóminn, einkenni og bjargráð þegar þér hentar.
Hvað þarf til að nota appið?
Skilja íslensku, því allt efni er á íslensku
Eiga snjallsíma
Kunna að opna app í síma
Uppsetning
Ef þú hefur fengið kynningarbæklinginn og vilt hlaða niður appinu á Landspítala er best að tengjast gestaneti Landspítala (LSH-Gestanet). Samþykkja þarf skilmála gestanetsins til að komast á netið. Skannaðu QR kóðann á bæklingnum með myndavélinni þinni. Ef þú velur að ná í appið í gegnum SMS sem við sendum þér eftir útskrift nægir að smella á hlekkinn sem þú færð sendan.
Veldu að:
Búa til aðgang.
Skráðu þig inn með netfanginu þínu.
Veldu lykilorð sem inniheldur ekki orð eða nafn í netfanginu. Það þarf að vera með hástaf, lágstaf, tölu og tákni.
Leyfa tilkynningar þar sem þess er óskað.
Passa að skrá rétta kennitölu þegar þess er óskað .
Gott er að staðsetja appið á heimaskjá.
Tæknileg aðstoð
Ef þú lendir í vandræðum með uppsetningu getur þú sent póst á netfangið support@sidekickhealth.com Ef þú ert staddur á Landspítala geta ritarar Hjartagáttar mögulega aðstoðað.
Ef þú skiptir um síma á tímabilinu, þarf að sækja appið í nýja símann og skrá þig aftur inn/log in með notendanafninu og lykilorðinu sem þú notaðir þegar þú skráðir þig upphaflega í appið.
Ég vil hætta í appinu
Þú getur hætt í appinu þegar þú vilt en þú mátt gjarnan senda okkur skilaboð vegna þess í skilaboðaskjóðu appsins.
