Kosningaeftirlit
Viðmið um framkvæmd kosningaeftirlits á Íslandi
Samkvæmt 138. gr. kosningalaga nr. 112/2021 geta innlendir og erlendir kosningaeftirlitsmenn frá stofnunum eða samtökum fengið heimild landskjörstjórnar til þess að fylgjast með framkvæmd kosninga. Leiðbeiningar þessar eru ætlaðar fyrir landskjörstjórn og kosningaeftirlitsmenn.
Framkvæmd kosninga á kjördag er fyrst og fremst í höndum yfirkjörstjórna sveitarfélaga en talning við alþingiskosningar, forsetakjör og þjóðaratkvæðagreiðslu er á ábyrgð yfirkjörstjórna kjördæma. Yfirkjörstjórnir sveitarfélaga sjá um talningu atkvæða við sveitarstjórnarkosningar.
Landskjörstjórn er yfirkjörstjórnum til stuðnings og afhendir öll kjörgögn í öðrum kosningum en sveitarstjórnarkosningum.
Kröfur til stofnana eða samtaka fyrir kosningaeftirliti
Kosningaeftirlitsmenn sem eru hluti af innlendum eða alþjóðlegum stofnunum eða samtökum geta fengið heimild til þess að sinna kosningaeftirliti á Íslandi að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Einstaklingum er að jafnaði ekki veitt heimild til kosningaeftirlits. Gert er ráð fyrir að niðurstöður kosningaeftirlitsins séu opinberar og í samræmi við alþjóðlega staðla. Landskjörstjórn og/eða utanríkisráðuneytið geta boðið samtökum eða stofnunum að sinna eftirliti eða þær geta sjálfar óskað eftir því við landskjörstjórn að sinna kosningaeftirliti á Íslandi. Til þess að fá að sinna kosningaeftirliti þarf að vera ljóst að eftirlitið sé í samræmi við innlend og alþjóðleg lög og reglur.
Umsókn um kosningaeftirlit
Landskjörstjórn tekur á móti umsóknum um kosningaeftirlit, nema í tilviki Mannréttinda- og lýðræðis-stofnunar ÖSE (ODIHR) og Héraðs- og sveitarstjórnarvettvangi Evrópuráðsins (Congress of Local and Regional Authorities of the Council of Europe) en þar hefur utanríkisráðuneytið milligöngu um samskipti. Landskjörstjórn gefur þó alltaf út skilríki til kosningaeftirlitsmanna.
Sækja þarf um að sinna kosningaeftirliti a.m.k. 30 dögum fyrir kosningar. Eftirfarandi upplýsingar þurfa að koma fram með umsókninni:
Hvaða kosningum er óskað eftir að hafa eftirlit með og hver sé tilgangur eftirlitsins.
Upplýsingar um stofnunina eða samtökin sem sækja um, s.s. hlutverk, starfsemi og eignarhald/félagaform.
Nafn og fæðingardag kosningaeftirlitsmanna.
Afrit af vegabréfi kosningaeftirlitsmanna með mynd og vegabréfsnúmeri.
Tengiliðaupplýsingar meðan á dvölinni hérlendis stendur, símanúmer og netfang.
Til þess að meta umsóknir gætu stofnanir eða samtök verið beðin um viðbótarupplýsingar, til dæmis:
Fyrri reynslu stofnunarinnar eða samtakanna af kosningaeftirliti og skýrslum þar að lútandi.
Vefsíðu með upplýsingum um stofnunina eða samtökin, aðferðarfræði þeirra við kosningaeftirlit og tilgang kosningaeftirlitsins.
Aðferðarfræði við kosningaeftirlit, t.d. með vísun til alþjóðlegra staðla.
Hvers vegna áhugi er á því að stunda kosningaeftirlit á Íslandi.
Umsókn skal senda rafrænt til landskjörstjórnar ásamt viðeigandi fylgigögnum á postur@landskjorstjorn.is.
Framkvæmd kosningaeftirlits
Allir kosningaeftirlitmenn sem koma til að fylgjast með kosningum og hafa fengið heimild landskjörstjórnar fá útgefin skilríki frá landskjörstjórn sem þeir skulu bera við störf sín. Öllum kosningaeftirlitsmönnum er gert að koma á fund landskjörstjórnar sem haldinn er fyrir kjördag til þess að fá kynningu á fyrirkomulagi kosninganna og til að fara yfir reglur sem gilda við framkvæmd kosninga. Jafnframt er ætlast til þess að þeir kynni sér gildandi lög og reglur um framkvæmd kosninganna.
Kosningaeftirlitmenn skulu tilkynna kjörstjórn á kjörstað eða talningarstað um komu sína og brottför. Þeir skulu sinna hlutverki sínu af kostgæfni og kurteisi og þeim ber að hlíta lögum, reglugerðum og öðrum fyrirmælum og fundarreglum sem í gildi eru á hverjum stað. Kosningaeftirlitsmenn skulu ekki hindra framgang kosninganna. Þeir hafa ekki heimild til að leiðbeina, aðstoða eða taka þátt í framkvæmd kosninganna eða talningu.
Landskjörstjórn tekur enga fjárhagslega ábyrgð eða aðra ábyrgð á kosningaeftirlitsmönnum eða aðilum tengdum þeim.
Landskjörstjórn hefur ekki milligöngu um vegabréfsáritanir. Ef kosningaeftirlitsmenn þurfa vegabréfs-áritun til þess að koma til landsins er það á hendi Útlendingastofnunar eða viðeigandi sendiráðs að veita slíka áritun.