Jafnlaunakerfi er kerfi sem tryggir að laun séu ákveðin með skýrum, hlutlægum og gagnsæjum viðmiðum þannig að allir fái sömu laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf, óháð kyni.
Almennt er talað um tvo hluti þegar kemur að jafnlaunakerfi, jafnlaunastaðfestingu og jafnlaunavottun.
Hvað er jafnlaunastaðfesting?
Jafnlaunastaðfesting er staðfesting frá Jafnréttisstofu um að launakerfi fyrirtækis eða stofnunar mismuni ekki kynjum. Hún byggir á gögnum sem sýna að launaákvarðanir séu málefnalegar og réttlátar.
Jafnlaunavottun var lögfest árið 2017 og byggir á jafnlaunastaðlinum ÍST 85. Jafnlaunavottun er staðfesting þess að fyrirtæki eða stofnun uppfylli kröfur jafnlaunastaðalsins og sýni fram á að þau greiði sömu laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf, óháð kyni.
Hún tryggir að launakerfi sé gagnsætt, réttlátt og endurskoðað reglulega af óháðum vottunaraðila.
Með því að innleiða staðalinn geta fyrirtæki og stofnanir komið sér upp kerfi sem tryggir að launaákvarðanir séu byggðar á málefnalegum og gagnsæjum viðmiðum, án kynbundinnar mismununar.
Jafnlaunastaðallinn hentar öllum fyrirtækjum, óháð stærð eða starfsemi. Staðalinn er hægt að nálgast hjá Staðlaráði Íslands
Faggiltur vottunaraðili metur hvort kröfur staðalsins séu uppfylltar og veitir þá jafnlaunavottun. Hún gildir í þrjú ár.
Fjöldi fyrirtækja og stofnana sem hafa hlotið jafnlaunavottun er: 593
Samtals fjöldi starfsfólks hjá þeim fyrirtækjum og stofnunum sem öðlast hafa jafnlaunavottun: 122.824
Sjá nánari upplýsingar í meðfylgjandi skjali. Uppfært 10.4.2026 Sjá einnig mælaborð hér
Eftirtaldir aðilar hafa tímabundið leyfi til að framkvæma úttektir og votta jafnlaunakerfi fyrirtækja og stofnana samkvæmt staðlinum ÍST 85, sbr. 5. gr. reglugerðar nr. 1030/2017:
Jafnréttisstofa veitir þeim vinnustöðum jafnlaunamerkið sem hlotið hafa faggilta vottun á jafnlaunastaðlinum ÍST 85:2012 af þar til bærum aðila, þ.e. viðurkenndri vottunarstofu sem uppfyllir skilyrði reglugerðar um vottun á jafnlaunakerfum fyrirtækja og stofnana á grundvelli staðalsins ÍST 85. Jafnlaunamerkið er sent þeim aðilum þegar stofnuninni hefur borist vottunarskírteini ásamt skýrslu um niðurstöðu frá úttektaraðila.
Aðgerðahópur stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins efndi til hönnunarsamkeppni, á haustdögum ársins 2014, um jafnlaunamerkið í samvinnu við Hönnunarmiðstöð Íslands. Alls bárust 156 tillögur og bar tillaga Sæþórs Arnar Ásmundssonar sigur úr býtum. „Í merkinu má sjá mynd sem sýnir skífurit, stimpil, rúnir og brosandi andlit tveggja ólíkra einstaklinga. Í lögun minnir merkið á mynt eða pening og gefur þannig til kynna að einstaklingarnir sem þar sjást séu metnir jafnir að verðleikum. Merkið býður upp á alþjóðlega notkun, er einstakt og lýsandi fyrir verkefnið,“ sagði í umsögn dómnefndar. Sjá reglur um notkun jafnlaunamerkis í fylgiskjali með reglugerð 1030/2017.
Jafnréttisáætlun samþykkt
Fyrirtækið sendir jafnréttisáætlun í gegnum þjónustugátt Jafnréttisstofu til samþykktar.
Verkáætlun og stöðumat
Gerð verkáætlunar fyrir innleiðingu jafnlaunakerfis.
Stöðumat unnið, m.a. um:
hvort jafnlaunastefna sé til og kynnt,
hvort launaákvarðanir séu skjalfestar og rekjanlegar,
hvort verklagsreglur og ábyrgð séu skýrar.
Innleiðing
Framkvæmd starfaflokkunar.
Gerð launagreiningar byggðrar á starfaflokkun.
Tryggt að verklagsreglur um launaákvarðanir séu vel skjalfestar.
Innri úttekt / forúttekt Staða metin til að sjá hvort allar kröfur jafnlaunastaðalsins séu uppfylltar.
Umsókn um vottun Ef allar kröfur eru uppfylltar er sótt um jafnlaunavottun hjá faggiltri vottunarstofu.
Vottunarúttekt Vottunarstofa framkvæmir formlega úttekt á því hvort fyrirtækið fylgi jafnlaunastaðlinum ÍST 85.
Útgáfa vottunar Vottunarstofa gefur út vottunarskírteini og sendir Jafnréttisstofu niðurstöðurnar.
Heimild til að nota jafnlaunamerkið Jafnréttisstofa veitir leyfi til notkunar á jafnlaunamerkinu og birtir fyrirtækið á lista yfir staðfesta aðila.