Fara beint í efnið
Hæstiréttur Íslands Forsíða
Hæstiréttur Íslands Forsíða

Hæstiréttur Íslands

Hagsmunaskráning dómara

Hæstiréttur hefur ákveðið að frá byrjun árs 2017 verði aðgengilegar á heimasíðu réttarins upplýsingar um hagsmunatengsl hæstaréttardómara. Við ákvörðun um efni þessara upplýsinga hefur verið tekið mið af því sem dómurum ber að tilkynna nefnd um dómarastörf um samkvæmt fyrirmælum 45. gr. laga nr. 50/2016 um dómstóla og reglum settum samkvæmt þeim.

Jafnframt hefur verið litið annars vegar til reglna Alþingis um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum alþingismanna og trúnaðarstörfum utan þings og hins vegar til þess hvernig atriðum sem þessum er hagað á Norðurlöndunum. Á þessum grunni munu upplýsingarnar varða eftirfarandi meginatriði:

  1. Aukastörf hvers og eins dómara ásamt því hvort greiðsla komi fyrir þau og þá úr hendi hvers.

  2. Fasteignir í eigu dómara sem ætlaðar eru til annars en eigin nota fyrir hann og fjölskyldu hans.

  3. Eignarhluta í hvers kyns félögum.

  4. Allar skuldir dómara sem ekki tengjast beinlínis öflun fasteignar til eigin nota.

  5. Aðild dómara að félögum sem ekki starfa með fjárhagslegu markmiði.

Upplýsingar þessar munu miðast við stöðu í ársbyrjun 2017 og verða þær framvegis uppfærðar jafnskjótt og tilefni er til.

Telji aðilar að einstökum dómsmálum sig þurfa að fá tilgreindar upplýsingar um eitthvert áðurgreindra atriða á tilteknu fyrra tímamarki varðandi dómara í málum þeirra geta þeir beint fyrirspurn um það til Hæstaréttar.

Hagsmunaskráning dómara