Dómsmálagjöld
Um gjaldskrána
Dómsmálagjöldum var síðast breytt 1. janúar 2023 en þau eru innheimt á grundvelli laga um aukatekjur ríkissjóðs nr. 88/1991 með síðari breytingum.
Greiðslur
Allar greiðslur eiga að fara inn á:
Reiknings númer: 0101-26-69580
Kennitölu: 650169-4419
Senda skal kvittun á haestirettur@haestirettur.is
Mikilvægt er að það komi fram á kvittununum fyrir hvað er verið að greiða.
Með vísan til 3. mgr. 1. gr. laga nr. 88/1991 um aukatekjur ríkissjóðs eru dómsmálagjöld við meðferð einkamála fyrir Hæstarétti sem hér segir:
Gjald fyrir kæru eða beiðni um kæruleyfi ásamt kæru er kr. 70.000 og greiðist til Landsréttar.
Gjald fyrir áfrýjunarleyfi kr. 70.000.
Gjald fyrir áfrýjunarstefnu er:
Þegar áfrýjunarfjárhæð er allt að kr. 3.000.000 er gjaldið kr. 34.000.
Þegar áfrýjunarfjárhæð er kr. 3.000.000 - 30.000.000 og þegar krafist er viðurkenningar á réttindum og eða skyldum er gjaldið kr.70.000.
Þegar áfrýjunarfjárhæð er kr. 30.000.000 – 90.000.000 er gjaldið kr. 176.000.
Þegar áfrýjunarfjárhæð er 90.000.000 – 150.000.000 er gjaldið kr. 269.000.
Þegar áfrýjunarfjárhæð er 150.000.000 eða hærri er gjaldið kr. 404.000
Gjald fyrir þingfestingu er kr. 34.000.
Fyrir endurrit og ljósrit á hverja síðu kr. 300.
Gjöld greiðast ekki í eftirfarandi málum:
Málum til innheimtu vinnulauna.
Barnfaðernismálum.
Málum til vefengingar á faðerni barns.
Lögræðissviptingarmálum.
Kjörskrármálum.
Einkarefsimálum.
Gjafsóknarmálum að því leyti sem gjald yrði lagt á gjafsóknarhafa.
Forsjármálum.
Afhendingarmálum sbr. lög nr. 160/1995.
(Lög um viðurkenningu og fullnustu erlendra ákvarðana um forsjá barna, afhendingu brottnuminna barna o.fl.)