Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Fjársýslan Forsíða
Fjársýslan Forsíða

Fjársýslan

Nýsköpunarverðlaun hins opinbera

Nýsköpunarverðlaun hins opinbera eru veitt árlega fyrir framúrskarandi umbótastarf í opinberri starfsemi. Verðlaunin varpa ljósi á opinbera aðila og einstaklinga í opinberu starfi sem hafa staðið að umbreytingu og framförum í starfseminni.

Markmið

Verðlaunin hafa það að leiðarljósi að:

  • Styrkja menningu þar sem árangur, ábyrgð og fagleg nýsköpun fara saman

  • Varpa ljósi á raunveruleg umbótaverkefni sem hafa skilað mælanlegum árangri.

  • Hvetja til þess að opinberir aðilar nýti innkaup til nýsköpunar í sinni starfsemi.

  • Auka sýnileika árangursríkrar nýsköpunar hjá opinberum aðilum sem aðrir geta lært af og byggt á.

Viðmið dómnefndar

Við mat á tilnefningum horfir dómnefnd sérstaklega til þess hvort verkefnið:

  • Feli í sér umbótastarf, innkaup eða innleiðingu nýjunga, eða aðra þarfamiðaða breytingu á aðferðum og verklagi.

  • Hafi jákvæð áhrif á þjónustu, bæti upplifun notenda eða auki hagkvæmni eða afköst starfseminnar.

  • Setji fordæmi sem aðrir opinberir aðilar geta nýtt sér.

Flokkar

Verðlaun eru veitt í eftirfarandi flokkum:

  • Einstaklingur í opinberu starfi

  • A-hluta stofnun, opinbert hlutafélag eða ráðuneyti

  • Sveitarfélag

Heiðursverðlaun eru veitt við valin tækifæri fyrir framúrskarandi og varanlegt framlag til umbóta og nýsköpunar í opinberri þjónustu.

Verðlaunahafar

Fjársýslan

Afgreiðslu­tími

Mánudaga-fimmtudaga 9-15
föstudaga 9-13

Heim­il­is­fang

Katrínartún 6
105 Reykjavík

Kt. 540269-7509

Hafðu samband

Netfang: fjarsyslan@fjarsyslan.is

Sími: 545 7500