Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Fjársýslan Forsíða
Fjársýslan Forsíða

Fjársýslan

Nýsköpunardagur hins opinbera 2026

Dagur: 6. maí
Tími: 13:00 - 16:00
Staður: Fjársýslan (Katrínartún 6, Dynjandi)

Dagskrá NHO26 er í vinnslu en þema viðburðarins verður heildstæðar umbætur í ríkisrekstri — með áherslu á hvernig ríkið getur nýtt innkaup og umbætur í starfsemi til að ná fram aukinni hagkvæmni og skilvirkni í þjónustu við almenning og fyrirtæki.

Ríkisstofnanir standa frammi fyrir vaxandi kröfum um aðhald í útgjöldum, á sama tíma og þörf fyrir öfluga og trausta opinbera þjónustu hefur aldrei verið meiri.

Árleg vöru- og þjónustukaup ríkisins árið 2024 námu um 530 milljörðum króna, sem jafngildir um 11–12% af vergri landsframleiðslu á Íslandi. Því er til mikils að vinna ef stofnanir leggjast á eitt við að knýja fram bestu fáanlegu samningskjör og ná auknum samlegðaráhrifum í rekstri með nýskapandi hætti.

NHO26 mun ávarpa þessa stöðu, skoða færar leiðir sem stofnanir geta fetað til að mæta áskorunum og ræða hvaða breytingar á viðhorfum og aðferðum þurfi til að til að grípa tækifærin.

Takmarkaður sætafjöldi í boði.

Skráning fer fram hér!

Dagskrá

Opnun fundarstjóra

Ingþór Karl Eiríksson, forstjóri Fjársýslunnar

Setningarávarp

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra

Lykil erindi

Hessel van Oorschot, forstöðumaður SiR Intergov
Hessel mun fjalla um reynslu hollenskra stjórnvalda við að umbreyta samfélagslegum áskorunum í markviss umbótaverkefni, t.d. með stefnumótandi innkaupum. Í erindinu mun hann einnig ræða hvernig gagnvirk innkaupakerfi (e. Dynamic Purchasing Systems) og sterk tengsl hins opinbera og markaðarins geta hraðað þróun lausna og leitt til raunverulegra umbóta í þjónustu við samfélagið.

Að kenna gömlum hundi að hjóla

Sigurjón Einar Þráinsson, sviðsstjóri umbóta- og þróunarsviðs Fjársýslunnar
Orrinn, fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins er að læra nýjar kúnstir. Sigurjón fer yfir hvernig umbótaverkefni Fjársýslunnar gerir stofnunum kleift að nýta sér viðskiptakortalausnir fjártæknifyrirtækja við stafvæðingu og sjálfvirkni í rekstri og bókhaldi kortafærslna. Með þessu frumkvæði gerir Fjársýslan stofnunum kleift að skapa hagræði í rekstri með innkaupum á nýsköpun.

Kaffi

Rannsóknir og þróun sem verða að hagkvæmni og framförum

Anna Sigríður Islind, prófessor við Háskólann í Reykjavík
Í rannsóknar- og þróunarvinnu hefur Anna Sigríður komið að úrlausn þekktra vandamála í velferðar- og heilbrigðiskerfinu — en reynslan sýnir að þrátt fyrir góðan árangur getur afurðin orðið að engu þegar rannsóknarfjármögnunin klárast. Reynslusaga Önnu varpar ljósi á tækifæri sem felast í virkari aðkomu opinberra aðila í ferlinu og hvaða hlutverk innkaup geta spilað í því að hagnýta jákvæðar rannsóknarniðurstöðum í umbætur í opinberri starfsemi.

Afhending Nýsköpunarverðlauna hins opinbera 2026

Skál og tengslamyndun

Fjársýslan

Afgreiðslu­tími

Mánudaga-fimmtudaga 9-15
föstudaga 9-13

Heim­il­is­fang

Katrínartún 6
105 Reykjavík

Kt. 540269-7509

Hafðu samband

Netfang: fjarsyslan@fjarsyslan.is

Sími: 545 7500