Innheimta opinberra gjalda
Fjársýslan sér um innheimtu opinberra gjalda fyrir ríkissjóð og rekur innheimtukerfi ríkisins. Markmiðið er að tryggja skilvirka, örugga og samræmda innheimtu frá álagningu til greiðslu eða afskriftar.
Kílómetragjald er lagt á mánaðarlega samkvæmt áætlun um meðalakstur. Álagning og breytingar fara fram í hverjum mánuði.
Staðgreiðsla er greidd mánaðarlega samkvæmt föstum dagsetningum.
Gjalddagi er fyrsti dagur hvers mánaðar. Eindagi er fimmtándi dagur hvers mánaðar.
Virðisaukaskattur er greiddur eftir uppgjörstímabili hvers aðila.
Uppgjör getur verið:
á tveggja mánaða fresti
mánaðarlegt
árlegt
Eindagi er fimmti dagur hvers mánaðar.
Álagning einstaklinga fer fram eftir að skattframtali hefur verið skilað og álagning liggur fyrir. Álagningarseðill er birtur í lok maí.
Greitt er í nokkrum jöfnum greiðslum yfir árið.
Gjalddagi er fyrsti dagur hvers mánaðar.
Eindagi er síðasti virki dagur hvers mánaðar.
Álagning lögaðila fer fram eftir að álagningarseðill hefur verið birtur í lok október.
Gjalddagi er fyrsti dagur hvers mánaðar. Eindagi er síðasti virki dagur hvers mánaðar.
Fyrirframgreiðslur eru greiddar frá febrúar til september.
Fjármagnstekjuskattur er innheimtur með tvennum hætti:
sem staðgreiðsla við útborgun tekna
eftir á við álagningu
Aðflutningsgjöld eru greidd við tollmeðferð þegar vara er flutt til landsins.
Gjalddagi og eindagi eru sami dagur.
Veiðigjöld eru lögð á mánaðarlega og byggja á aflaskráningu hjá Fiskistofu.
Gjalddagi er fyrsti dagur hvers mánaðar vegna veiða þarsíðasta mánaðar. Eindagi er fimmtándi dagur hvers mánaðar.
Álagning virðisaukaskatts er í umsjón Ríkisskattstjóra.
Þegar inneign hefur myndast í kerfinu er greitt út sjálfkrafa. Ef endugreiðsla berst ekki getur verið að það vanti upplýsingar um bankareikning og það er hægt að skrá hann á mínum síðum á www.island.is
Inneignir vegna skatta og gjalda eru greiddar út daglega í sjálfvirkri útborgun.
Ef endugreiðsla berst ekki, getur verið að það vanti upplýsingar um bankareikning og það er hægt að skrá hann á mínum síðum á www.island.is
Þjónustugjöld og önnur innheimta
Innheimta hjá heilbrigðisstofnunum fer eftir því hvaða þjónusta er veitt og hver greiðandinn er.
Greiðsla getur farið fram með:
beinni greiðslu við þjónustu
reikningi
miðlægri innheimtu
Kröfur vegna framhaldsskóla eru sendar til:
forráðamanna, ef nemandi er yngri en 18 ára
nemenda, ef nemandi er 18 ára eða eldri
Innheimta á milli stofnana fer fram daglega.
Gjalddagi og eindagi fara eftir samkomulagi og fyrirkomulagi á milli stofnana hverju sinni.
Gjöld vegna umsókna hjá sýslumanni eru almennt greidd áður en umsókn er tekin til meðferðar.
Fyrirkomulagið er það sama á landsvísu og byggir á lögum og gjaldskrám.
Gjalddagi er yfirleitt strax, miðað við dagsetningu umsóknar. Greiðslufrestur er stuttur, oft 5 til 10 dagar.