Uppselt á Fjársýsludaginn í sal – streymisaðgangur enn í boði
10. nóvember 2026
Mikill áhugi hefur verið á Fjársýsludeginum og nú er orðið fullbókað í sal á Hilton Reykjavík. Lokað hefur því verið fyrir skráningu á viðburðinn á staðnum.

Enn er þó hægt að kaupa aðgang að streymi og fylgjast með dagskrá Fjársýsludagsins í beinni.
Athygli er vakin á því að ekki er lengur hægt að gera breytingar á skráningum. Allir gestir sem skráðir eru í sal fá jafnframt sendan hlekk á streymið.
Við þökkum kærlega fyrir þann mikla áhuga sem Fjársýsludagurinn hefur fengið og hlökkum til að taka á móti þátttakendum, bæði í sal og í streymi.
