Síminn Pay uppfyllir kröfur um rafræn gagnaskil fyrir viðskiptakort ríkisins
26. október 2026
Síminn Pay hefur lokið öðrum áfanga nýsköpunarverkefnis Fjársýslunnar um rafræn gagnaskil vegna innkaupa- og viðskiptakorta. Markmið verkefnisins er að einfalda uppgjör og bókun kortafærslna í Orra, bæta gagnagæði og draga úr handavinnu og pappírsnotkun.

Lausn fyrirtækisins uppfyllir þar með skilgreindar kröfur Fjársýslunnar. Þróun og prófun lausna hinna tveggja fyrirtækjanna heldur áfram.
Markmið verkefnisins er að einfalda uppgjör og bókun kortafærslna í Orra, bæta gagnagæði og draga úr handavinnu og pappírsnotkun. Verkefnið er þróunar- og prófunarvettvangur en ekki innkaupaferli. Hver stofnun metur sjálf hvaða lausn hentar þörfum hennar og hagar kaupum í samræmi við gildandi innkaupareglur.
Sjá nánar https://island.is/v/opinbernyskopun/fjartaeknilausnir-fyrir-vidskiptakort-rikisins
