Opnað fyrir gerð rekstraráætlunar 2027 í AKRA
25. september 2026
Opnað hefur verið fyrir gerð rekstraráætlunar 2027 í AKRA.

Við opnun hafa verið lesin inn öll opin viðföng úr ORRA, launagögn úr september 2026, fjárhagsgögn til og með ágúst 2026 og fjárheimildir samkvæmt frumvarpi til fjárlaga 2027. Endanlegar fjárheimildir verða lesnar inn í ORRA og AKRA þegar fjárlög 2027 hafa verið samþykkt.
Samkvæmt lögum um opinber fjármál skulu ríkisaðilar skila rekstraráætlun fyrir komandi fjárlagaár innan eins mánaðar frá framlagningu fjárlagafrumvarps og fylgirita þess á Alþingi. Þegar endanlegar fjárveitingar liggja fyrir skulu áætlanir endurskoðaðar og lagðar fyrir viðkomandi fagráðuneyti til staðfestingar.
Nánari upplýsingar um AKRA, verklag við áætlanagerð og leiðbeiningar má finna á vef Fjársýslunnar:
