Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Fjársýslan Forsíða
Fjársýslan Forsíða

Fjársýslan

Opið fyrir tilnefningar til Nýsköpunarverðlauna hins opinbera 2026

23. febrúar 2026

Fjársýslan auglýsir eftir tilnefningum til Nýsköpunarverðlauna hins opinbera 2026.

Nýsköpunarverðlaun hins opinbera eru veitt til opinberra aðila sem hafa skarað fram úr í framþróun og umbreytingu á opinberri starfsemi og þjónustu. Markmið verðlaunanna er að vekja athygli á verkefnum og einstaklingum sem hafa innleitt nýjar lausnir, breytt verklagi eða nýtt innkaup og aðrar aðferðir markvisst til að bæta þjónustu og auka hagkvæmni í þágu samfélagsins.

Öllum er frjálst að senda inn tilnefningar. Að hljóta tilnefningu til Nýsköpunarverðlauna hins opinbera er þýðingarmikil viðurkenning sem stuðlar einnig að tækifærum til að miðla verðmætri reynslu og hvetur til áframhaldandi umbóta á opinberri starfsemi.

Hefð er fyrir því að verðlaunahafar fyrra árs, ásamt fulltrúum Fjársýslunnar og fjármála- og efnahagsráðuneytisins skipi sæti í dómnefndinni.

Dómnefnd verðlaunanna í ár skipa:

  • Benedikt Geir Jóhannesson, Skatturinn

  • Guðlaug Dröfn Þórhallsdóttir, Dómsmálaráðuneytið

  • Ingvar Högni Ragnarsson, Hafnarfjarðarbær

  • Kristín Þórdís Ragnarsdóttir, Reykjavíkurborg

  • Íris Huld Christersdóttir, Fjármála- og efnahagsráðuneytið

  • Ingþór Karl Eiríksson, formaður dómnefndar, Fjársýslan

Verðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn á Nýsköpunardegi hins opinbera 6. maí nk.

Senda tilnefningu til Nýsköpunarverðlauna hins opinbera 2026

Nánari upplýsingar um Nýsköpunarverðlaun hins opinbera og verðlaunahafa fyrri ára

Fjársýslan

Afgreiðslu­tími

Mánudaga-fimmtudaga 9-15
föstudaga 9-13

Heim­il­is­fang

Katrínartún 6
105 Reykjavík

Kt. 540269-7509

Hafðu samband

Netfang: fjarsyslan@fjarsyslan.is

Sími: 545 7500