Kynningarfundur vegna fyrirhugaðs rammasamningsútboðs Stafrænnar heilsu
24. júní 2026
Stafræn heilsa, í samstarfi við Fjársýsluna, boðar til kynningarfundar vegna fyrirhugaðs rammasamningsútboðs á sérfræðingum í hugbúnaðarþróun, rekstri og ráðgjöf.

Á fundinum verður farið yfir:
Almenna kynningu á samningsútboðinu,
Hæfiskröfur, hverjir geta sent inn tilboð (fyrirtæki og sjálfstætt starfandi),
Hlutverk innan rammasamningsins,
Val inn í samninginn og mat á tilboðum,
Fyrirkomulag kaupa innan samningsins, þ.m.t. bein kaup og örútboð,
Skila- og frammistöðumat á samningstíma.
Fundurinn verður haldinn í fjarfundi (Teams) 30. júní 2026 kl. 9:00–10:00.
Smelltu hér fyrir nánari upplýsingar um fundinn og skráningu.
